Uppsjávarskipið Tasiilaq sem skráð er á Grænlandi en Eyjamenn þekkja Guðmundur VE slitnaði frá bryggju að aftan í morgun og var innsti hluti hafnarinnar lokaður um tíma. Tasiilaq var með afturendann í Jóni Vídalín sem lá framan við Vinnslustöðinar. Ekki varð tjón og og tókst áhöfninni að keyra skipið aftur að bryggju án áfalla.