�?ar sem verkin tala
�?að hefur verið ánægjulegt að fylgjast með þeim breytingum sem hafa orðið í Vestmannaeyjum á undanförnum árum undir styrkri stjórn sjálfstæðismanna.
Sterk málefnastaða
Vestmannaeyjabær hefur farið úr því að vera eitt skuldsettasta sveitarfélag landsins í það að vera eitt þeirra minnst skuldsettustu. �?að skiptir gríðarlegu máli fyrir möguleika sveitarstjórnar til bæta lífskjör íbúanna í dag og hefur ekki síst áhrif á tækifæri þeirra sem munu stjórna bæjarfélaginu í framtíðinni til að bæta lífskjörin enn frekar.
Eftir stórsigur Sjálfstæðisflokksins í síðustu sveitarstjórnarkosningum höfðu menn á orði að erfitt yrði að toppa þann glæsilega sigur. Engu að síður var ljóst eftir því sem leið á kjörtímabilið að ekkert virtist því til fyrirstöðu að árangurinn yrði einmitt toppaður. �?egar stjórnmálamenn láta verkin tala, gera það sem þeir segjast ætla að gera og meina það sem þeir segja, líkt og bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins hafa sannarlega gert á kjörtímabilinu, þá hljóta kjósendur að vera ánægðir. Sveitarstjórnarmál snúast um málefni og málefnastaða sjálfstæðismanna í Eyjum er sterk.
�?flugur bæjarstjóri
Elliði Vignisson er öflugur málsvari Vestmannaeyja. Við frændsystkinin settumst bæði í stól framkvæmdastjóra sveitarfélaga eftir sveitarstjórnarkosningarnar 2006, hvort sínu megin við sundið. Samskiptin voru mikil, samstarfið gott þó auðvitað værum við ekki alltaf sammála um alla hluti. Málefni Landeyjahafnar voru þar í forgrunni bæði framkvæmdin sjálf en ekki síður tækifærin og möguleikarnir á auknu samstarfi Rangárþings eystra og Vestmannaeyja með tilkomu hafnarinnar. Í gegnum þessi samskipti fékk ég góða innsýn í þau stóru og alvarlegu verkefni sem blöstu við bæjarstjórn Vestmannaeyja varðandi reksturinn, fólksfækkun og baráttuna fyrir bættum samgöngum og heilbrigðisþjónustu. Sá viðsnúningur sem hefur orðið í Eyjum er ekki sjálfgefinn, hann næst aðeins með þrautseigu, áræðni og miklum viljastyrk. �?egar ég tók sæti á Alþingi hélst áfram gott samstarf og ég get leyft mér að segja að Elliði er óþreytandi baráttuhundur fyrir bættu samfélagi í Vestmannaeyjum, svo eftir er tekið á landsvísu.
Í hnotskurn
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins hafa sýnt það með verkum sínum að þeir eru traustsins verðir. �?að skiptir máli hverjir stjórna og sjálfstæðismenn geta verið stoltir af þeim mikla árangri sem náðst hefur við stjórnun bæjarfélagsins undanfarin kjörtímabil. �?g vona svo sannarlega að íbúar Vestmannaeyja velji áfram þá sem láta verkin tala og setji X við D á laugardaginn.
Unnur Brá Konráðsdóttir,
1. varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi

Nýjustu fréttir

Ræsið lestrarvélarnar! Sumarlestur Bókasafnsins
Boða til opins fundar um stöðu og framtíð Landeyjahafnar
Mörkunum rigndi inn þegar ÍBV náði í sinn fyrsta sigur í sumar
Díana Dögg og Andrea þýskir meistarar
Gagnrýnir orðræðu stjórnmálamanna
„Nú þurfum við á ykkur að halda“
Tap hjá ÍBV gegn Stjörnunni
Hoppukastalar, pylsur og Arsenal-stemning í Höllinni

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.