„Við höfum nú þegar fengið þónokkur viðbrögð og margar góðar ábendingar og ég hvet Vestmannaeyinga til þess að skoða gögnin á Netinu og vera óhræddir við að notfæra sér þetta tækifæri til þess að koma sjónarmiðum sínum á framfæri,“ sagði Sigurður Áss Grétarsson, forstöðumaður hafnasviðs Siglinga stofnunar, í viðtali við Vaktina, en útboðsgögn væntanlegrar Bakkafjöruferju eru nú aðgengileg á Netinu og áhugasömum boðið að leggja fram ábendingar á netfangið bakkafjara@sigling.is., fram til 31. janúar næstkomandi.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.