Samstaðan hafði betur í baráttunni við veðurguðina
Brekkusöngurinn var fjölmennur og veður hið besta. Myndir Óskar Pátur.

Þau voru mörg viðfangsefnin sem þjóðhátíðarnefnd og allir sem komu að hátíðinni í ár fengu að kljást við. Föstudagskvöldið færði með sér óvenju kraftmikið veður, með miklum hvellum og hviðum sem gengu yfir Vestmannaeyjar fram á nótt. Í Herjólfsdal var allt á fullu, ekki af neyð, heldur samstillt átak þar sem hver og einn lagði sitt af mörkum til að allt gengi upp.

„Við byrjuðum að undirbúa okkur strax á föstudagskvöldinu,“ segir Jónas Guðbjörn Jónsson, formaður þjóðhátíðarnefndar ÍBV. „Við höfðum lent í svipuðu áður og bjuggumst við að geta leyst þetta eins og áður  en þetta varð meira en við héldum. Þá kom bara þessi ótrúlega samstaða í ljós.“

Hann lýsir því hvernig brennu- og gæslufólk, starfsmenn og hátíðargestir tóku höndum saman þegar hviður fóru yfir 30 metra. „Það var eins og allir vissu nákvæmlega hvað átti að gera. Sumir héldu tjöldum, aðrir færðu bekki, og við notuðum allt sem til var, jafnvel bekkina sjálfa til að halda búnaðinum föstum. Þetta var í raun stórkostlegt að sjá.“

Lögun Dalsins átti líka sinn þátt í leiknum,  á einum stað blés eins og í stóriðjuveri en á öðrum var nánast logn. „Ég hljóp upp á brennu til að athuga stöðuna og þegar ég stóð á Klettinum voru lætin slík að mér leið eins og ég væri í miðju tónleikastigi náttúrunnar,“ segir Jónas hlæjandi.

Þegar lognið kom um kl. 02.00 tók nóttin nýja stefnu. Margir héldu áfram að skemmta sér í vari, aðrir fundu sér nýja samverustaði í Herjólfshöllinni eða víðar um bæinn. „Strætó fór að skutla fólki í bæinn, alveg frítt, og þetta var leyst á örskotsstund. Þeir hörðustu héldu áfram að dansa og syngja. Var hreinlega magnað að sjá hve margir voru áfram í Dalnum,“ segir hann.

Laugardagurinn og sunnudagurinn gengu síðan eins og í sögu. „Brekkusöngurinn í ár var frábær, sviðið, listamennirnir og fólkið í Brekkunni. Ég fékk mikið hrós fyrir útsendinguna, og það er alltaf gaman að sjá hversu fagmannlega þetta er unnið,“ segir Jónas.

Eyjafólk lagði líka sitt af mörkum til að gera helgina einstaka. „Það var tekið á móti gestum, þurrkuð föt og búnaður, hjálpað þar sem þurfti. Þessi hjálpsemi skiptir öllu máli, hún tryggir að fólk fari heim með bros á vör og vilji koma aftur, sama hvernig veðrið leikur við okkur,“ segir Jónas og heldur áfram.

„Aðsóknin var góð og sérstaklega á sunnudeginum, þegar rúmlega 1000 manns mættu sérstaklega til að syngja í Brekkunni. Nú þegar er hafin vinna við næstu hátíð. Þó veðrið hafi sett sinn dramatíska svip á Þjóðhátíðina í ár situr eftir minning um styrkan mannskap, hlýja samstöðu og hátíð sem enginn gleymir. Sjáumst að ári,“ sagði Jónas Guðbjörn formaður þjóðhátíðarnefndar að lokum.

 

 

 

 

 

 

 

Nýjustu fréttir

Gul veðurviðvörun á Suðurlandi
Ný bók Sigurgeirs fangar mál, menningu og sögu Vestmannaeyja 
Óli á Stapa leiðir gesti um fjölskyldusýningu í Svölukoti
Erna Sólveig – Hjálparstarf í Afríku og nám í Svíþjóð
Hvað vita börnin um eldgosið á Heimaey: Gabríela Máney
Blessuð sé minning starfshópsins
Hvað vita börnin um eldgosið á Heimaey: Bjarki Þór
Hvað vita börnin um eldgosið á Heimaey: Haraldur Dúi

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.