Þjóðhátíð fær fljúgandi start
„Það vilja allir vera Vestmanneyingar um verslunarmannahelgi“
Góðir vinir skála fyrir vel heppnuðu föstudagskvöldi á Þjóðhátíð með brennuna í baksýn. Ljósmyndir: Jonfromiceland

Fyrsta kvöld Þjóðhátíðar fór vel fram og var Herjólfsdalur fullur af lífsglöðum hátíðargestum, að því er fram kemur í tilkynningu frá þjóðhátíðarnefnd.

Dagskráin á stóra sviðinu náði hámarki þegar Birgitta Haukdal og Herra Hnetusmjör buðu upp á kraftmikla syrpu af vinsælustu lögum sínum. Þau enduðu síðan á að frumflytja þjóðhátíðarlagið í ár, Flugelda.

Brennan var á sínum stað og í kjölfarið stigu hljómsveitirnar Retro Stefson og XXX Rottweiler hundar á svið og buðu upp á kraftmikla tónleika.

Þrátt fyrir spár um dræma aðsókn í ár var Dalurinn vel fullur. Stemningin var þó afslappaðri en oft áður enda léku veðrið og lífið við hátíðargesti.

„Þetta er vonum framar. Dalurinn er fullur af fólki sem er að skemmta sér fallega. Það er að sprengja í pöntunum í Herjólf og miðarnir hafa rokið út í dag. Ég held að við séum að horfa fram á einhvers konar metsunnudag,“ segir Jónas Guðbjörn Jónsson, formaður þjóðhátíðarnefndar.

Hann telur að miðakaupendur hafi verið óákveðnir lengur en undanfarin ár.

„Það kann að tengjast veðurspám og það kann að tengjast því að hátíðin byrjar nánast fyrir mánaðamót. En hvað sem það er, þá vilja allir vera Vestmanneyingar um verslunarmannahelgi á Íslandi.“

Fjöldi annarra listamanna steig á svið í gærkvöldi, þeirra á meðal Daniil, Hipsumhaps, Gísli Pálmi, Sprite Zero Klan, Tónhylur og Séra Bjössi ásamt Háska og Reu.

Glæsileg dagskrá er fram undan á stóra sviðinu í kvöld. Þar koma fram Elísabet Ormslev, Klara Einars, Aron Can, Friðrik Dór, Herra Hnetusmjör, Kristmundur Axel og Doctor Victor. Kvöldinu lýkur síðan með tónleikum Bandmanna, auk þess sem flugeldasýningin verður á sínum stað.

Veðrið í Vestmannaeyjum hefur verið gott. Þótt nokkur vindur sé í Eyjum nýtur hans lítið í Herjólfsdal vegna vindáttar. Spáð er sól og 16 til 18 stiga hita í dag og á sunnudag.

Nýjustu fréttir

Þjóðhátíð fær fljúgandi start
Sex fíkniefnamál og einn ölvunarakstur
Enn bíðum við eftir Þjóðhátíð í fréttatíma RÚV
Þjóðhátíðarleikur á Hásteinsvelli í dag – Fram mætir í heimsókn
Dagskrá laugardags á Þjóðhátíð
Hvítu tjöldin – Skinkuhornin hafa fylgt Þjóðhátíðinni frá árdaga
Föstudagskvöldið í Dalnum í máli og myndum
Doctor Victor snýr aftur á stóra sviðið
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.