Þurfa annan dráttarbát
lods_skemmtiferdaskip
Lóðsinn innan hafnar. Fyrirliggjandi verkefnin eru þess eðlis að núverandi bátakostur getur ekki leyst þau. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Staða á bátakosti Vestmannaeyjahafnar var eitt af erindum sem framkvæmda- og hafnarráð tók fyrir á fundi sínum í gær. Dóra Björk Gunnarsdóttir, hafnarstjóri fór yfir bátakost hafnarinnar á fundinum.

Fram kemur í fundargerð að fyrirliggjandi verkefni séu þess eðlis að núverandi bátakostur getur ekki leyst þau s.s. þjónusta brunnbáta í Viðlagafjöru og móttöku ekjufraktskipa. Hafnarstjóri leggur áherslu á mikilvægi þess að leita verði að 10 tonna dráttarbát til að fjárfesta í sem fyrst til þess að hægt sé að sinna þeim verkefnum sem eru fyrirliggjandi og eru fyrirsjáanleg með auknum umsvifum. Nýr bátur myndi einnig taka verkefni af Lóðsinum eins og flutning hafnsögumanna sem myndi skila sér í minna kolefnisspor.

Ráðið vísaði málinu til umræðu í bæjarráði þar sem ljóst er að ef til ákvörðunartöku kemur varðandi bátakaup þarf að fara í viðauka. Þá fól ráðið hafnarstjóra að kanna með leigu á bát sem getur leyst fyrirliggjandi verkefni.

Nýjustu fréttir

ÍBV stelpurnar með þriðja sigurinn í röð
Milena í lokahóp u-16
Skýr framtíðarsýn í menningarmálum
Mukka með nýtt lag – „So Close“
Stórir fjárfestar og stéttarfélög bætast við hópinn á bak við Eyjagöng
Vigdís Sigurðar tók þátt í SuperHalf hlaupaseríunni  
Fyrsta ferð Herjólfs í Landeyjahöfn vorboði í snjókomunni
ÍBV sækir Val heim í dag
viðburðir
Matey 2022
22. maí 2026
18:00
MATEY Seafood Festival
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.