Tilvalin sumargjöf
Fótboltaskóli ÍBV og Heildverslunar Karls Kristmanns
IMG 7247
Fótboltaskólinn er fyrir krakka í 1.-8. bekk. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Fótboltaskóli ÍBV og Heildverslunar Karls Kristmanns verður haldinn páskavikuna 14. – 16. apríl nk. en þá verður frí í skóla sem og á æfingum. Hér er frábært tækifæri til að brjóta upp daginn fyrir krakkana sem og efla þau í fótboltanum. Styrktaraðilar skólans eru Heildverslun Karls Kristmanns sem og Vestmanneyjabær.

Í tilkynningu frá ÍBV segir að fótboltaskólinn sé fyrir krakka í 1.-8. bekk. Allir þátttakendur fá gefins páskaegg. Nákvæm tímasetning verður sett upp eftir að fjöldi þátttakenda liggur fyrir. Gera má ráð fyrir að æfingar verði á milli klukkan 10 og 15 hvern dag. Þátttakendum verður skipt upp eftir aldri.

Stjórnendur og leiðbeinendur skólans verða þjálfarar og leikmenn mfl karla. Það verður sérstök áhersla lögð á tækniæfingar og mun fjöldi þjálfara vera á hverri æfingu til að þær skili sem mestu fyrir börnin. Skráningafrestur er til 7. apríl og þau sem bóka fyrir þann tíma er tryggt páskaegg. Verð er aðeins 5.500 kr.

Þetta er tilvalin páskagjöf til krakkanna frá mömmu og pabba eða afa og ömmu. Þar sem gjöfin inniheldur þá öflugan fótboltaskóla sem og Páskaegg fyrir hátíðina. Við hvetjum ykkur því til að skrá ykkar barn hið fyrsta. Skráning fer fram á Sportabler og hægt að skrá sig hér.

Nýjustu fréttir

Í dag eru 75 ár frá Glitfaxaslysinu
Hárígræðslur í Tyrklandi 
Húsið of hátt – skipulagi breytt eftir á og nágrannar ósáttir
Elliði fyrir leikinn gegn Dönum
Spáð í spilin fyrir stórleikinn í kvöld á EM
Tíðarandi liðinna ára í myndum í Sagnheimum
Handbolti, loðnukvóti og prófkjör
Áskorun til Vestmannaeyinga 
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.