Tónleikar með SSSÓL hafa verið staðfestir og fara fram á föstudagskvöld í Höllinni. Fyrir helgi kom ákall frá Höllinni þar sem forsala var sögð undir væntingum.
„Þetta er alltaf áhætta og samtal milli okkar og listamannanna. Ég hafði aldrei séð forsölu fara svona hægt af stað hjá okkur á Sjómannadagstónleika en hafði samt alltaf trú. Við Helgi tókum svo spjall um þetta og var ákveðið að höfða til fólks og vegna góðra viðbragða hefur verið kýlt á tónleikana!” segir Daníel Geir Moritz, annar Hallarbændanna. “Það er mikill léttir að geta staðfest tónleika nú með 3ja daga fyrirvara og vonandi tryggir fólk sér miða, því þetta verður frábær skemmtun!”
Á laugardaginn fer svo fram hin árlega sjómannaskemmtun og segir Daníel Geir skráningu fína. „Bátum hefur vitaskuld fækkað en þetta kvöld á sinn sess hjá Eyjamönnum. Það verður miklu tjaldað til; Andri Ívars, Stebbi Jak og Marína Ósk sjá um veislustjórn og svo tekur við frábært ball. Að því loknu verður síðan alvöru klúbbastemning þar sem Herra Hnetusmjör mætir og svo mun DJ Eva Mey loka kvöldinu.”