Lék alls 223 meistaraflokksleiki og skoraði í þeim 28 mörk
Hjónin Unnur Björg Sigmarsdóttir og Hlynur Stefánsson hlutu Fréttapýramídann 2024 fyrir mikið og gott starf í þágu íþróttanna í Eyjum. Hún í handbolta og hann í fótbolta. Hlynur á langan og farsælan feril að baki í íþróttunum. Helstu afrek hans voru á knattspyrnuvellinum. Hann er fæddur 8. október 1964. Hlynur var fyrirliði ÍBV í fótbolta á gullaldarárunum 1997 og 1998. Þá tók golfið við þar sem hann er enn að keppa.
Hlynur byrjaði ungur að sparka í bolta og kom fljótlega í ljós að hann ætlaði sér stóra hluti á þeim vettvangi. Hann hóf ferilinn með knattspyrnufélaginu Tý. Árið 1981 er Hlynur var 17 ára gamall lék hann fyrsta leikinn með ÍBV. Það ár varð ÍBV bikarmeistari. Hlynur lék alls sjö leiki. Leikjunum fjölgaði svo árin á eftir og tveimur árum síðar lék hann alla 18 leikina í deildinni og þannig varð það flest tímabilin sem komu í kjölfarið.
Auk ÍBV lék Hlynur með Nydelfalken í Noregi árið 1986, Víkingi Reykjavík 1988 og Örebro í Svíþjóð árin 1992 – 1995. Árið 1996 sneri hann aftur á æskuslóðir og lék hann með ÍBV á fengsælasta tímabili liðsins í sögunni. Hann var fyrirliði liðsins er liðið landaði tveimur Íslandsmeistaratitlum og urðu auk þess bikarmeistarar í lok síðustu aldar.
Samtals lék hann 223 meistaraflokksleiki og skoraði í þeim 28 mörk. Hlynur lék 25 A landsleiki, en samtals lék hann 28 landsleiki og gerði í þeim 2 mörk.
Í seinni tíð hefur Hlynur einbeitt sér að golfinu og keppir hann þar með öflugum hópi eldri kylfinga sem hafa gert garðinn frægan. Hann komst í Einherjaklúbbinn þegar hann fór holu í höggi, 15. ágúst 2015 á holu 14.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst