Umhverfis Suðurland - Plastlaus september

Á síðasta fundi umhverfis- og skipulagsráð kom fram að Vestmannaeyjar eru þátttakendur í verkefninu Umhverfis Suðurland. En hvað er það?

Umhverfis Suðurland er áhersluverkefni og sameiginlegt átak sveitarfélaganna fjórtán á Suðurlandi með Samtökum sunnlenskra sveitarfélaga. Það gengur út á öflugt árverkni- og hreinsunarátak þar sem íbúar, fyrirtæki og sveitarfélög í landshlutanum eru hvött til enn meiri flokkunar og endurvinnslu en nú er, auk þess sem ráðist verður í almenna tiltekt í landshlutanum í tilefni af 100 ára fullveldisafmæli Íslands.

Átakið mun standa fram á næsta ár með ýmsum viðburðum og og ákveðnu þema fyrir hvern mánuð sem verður kynnt nánar þegar nær dregur. Næst á döfinni er hins vegar plastlaus september.

Plastlaus september
Í september á hverju ári fer fram árvekniátakið Plastlaus september og plast því þema þess mánaðar.  Átakinu er ætlað að vekja fólk til umhugsunar um ofgnótt og skaðsemi plasts í umhverfinu og benda á leiðir til að draga úr notkun á einnota plasti. Hver Íslendingur skilur eftir sig um 40 kíló af úrgangi umbúðarplasts á ári. Við á Suðurlandi viljum vera áberandi hluti af átakinu í ár og vonum að íbúar, sveitarfélögin og fyrirtæki taki vel í það með virkri þátttöku.

Umhverfis Suðurland er Áhersluverkefni og hluti af Sóknaráætlun Suðurlands.  Verkefnið er styrkt af uppbyggingarsjóðum sem taka mið af áherslum sóknaráætlunar í hverjum landshluta.

Nýjustu fréttir

Ekki einhugur um milljóna framlag til ÍBV
Loðnuvertíðin hafin í Eyjum
Heiðurshjónin Hjalti og Vera Björk Eyjafólk ársins 2025
Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.