Umhverfisviðurkenningar Vestmannaeyjabæjar afhentar
Fulltrúar verðlaunahafa við afhendingu umhverfisviðurkenninga Vestmannaeyjabæjar fyrir árið 2026 í Ráðhúsinu í dag. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar Pétur.

Umhverfisviðurkenningar Vestmannaeyjabæjar fyrir árið 2026 voru afhentar við athöfn í Ráðhúsinu í dag. Viðurkenningar voru veittar í fimm flokkum og var Hátún 14 valið snyrtilegasta eignin.

Hildur Sólveig Sigurðardóttir, formaður umhverfis- og skipulagsráðs, sagði óvenjumargar tilnefningar hafa borist í ár. Eftir vettvangsskoðun fulltrúa allra flokka í ráðinu hefði verið úr vöndu að ráða enda væru víða um bæinn glæsileg hús, fyrirtæki og garðar.

Hátún 14 snyrtilegasta eignin

Hátún 14 hlaut viðurkenningu sem snyrtilegasta eignin. Í umsögn ráðsins segir að húsið sé afar snyrtilegt og því hafi augljóslega verið vel viðhaldið í gegnum tíðina. Aðkoma, ásýnd hússins og garðurinn myndi fallega heild. Eigendurnir, Hulda og Orri, tóku við viðurkenningunni.

Smáragata 2 með snyrtilegasta garðinn

Viðurkenninguna fyrir snyrtilegasta garðinn hlaut Smáragata 2. Þar hefur verið vandað til verka og mikill tími lagður í ræktun fjölskrúðugs garðs sem lýst er sem mörgum görðum í einum, þar sem stöðugt megi uppgötva eitthvað nýtt.

Gott snyrtilegasta fyrirtækið

Veitingastaðurinn Gott við Bárustíg 11 var valinn snyrtilegasta fyrirtækið. Í umsögn ráðsins er sagt að staðurinn sé áberandi kennileiti í hjarta miðbæjarins. Fallegt gult bárujárn, skemmtileg hönnun og útlit staðarins gefi honum glaðlega og bjarta ásýnd.

Einnig er bent á sjálfbæra og umhverfisvæna nýtingu efniviðar í húsgögnum og vel heppnaðar breytingar innandyra. Gott styðji þannig við jákvæða og líflega upplifun í miðbæ Vestmannaeyja.

Endurbætur á Hábæ til fyrirmyndar

Hábær hlaut viðurkenningu fyrir endurbætur til fyrirmyndar. Eignin fékk flestar tilnefningar frá almenningi í ár.

Húsið stendur hátt og á áberandi stað í bænum. Að mati ráðsins hafa endurbæturnar tekist vel og lyft ásýnd þess. Sigmar Helgason, eigandi Hábæjar, hefur verið ötull við að dytta að húsinu.

Davíð Guðmundsson heiðraður fyrir framtak í umhverfismálum

Davíð Guðmundsson, oft kenndur við Tölvun, hlaut viðurkenningu fyrir framtak á sviði umhverfismála. Sérstaklega var horft til frumkvæðis hans við uppbyggingu innviða fyrir rafbíla í Vestmannaeyjum.

Davíð kom meðal annars upp hleðslustöð við Strandveg 50 árið 2020 sem rafbílaeigendur gátu nýtt sér án endurgjalds. Síðar bættust fleiri stöðvar við og hafði hann einnig milligöngu um að koma hleðslustöðvum upp á Básaskersbryggju.

Framlag Davíðs nær þó til fleiri verkefna. Hann átti meðal annars frumkvæði að myndatöku fyrir Google Street View í Vestmannaeyjum, tók þátt í uppsetningu vefmyndavélar við Skiphella og kom að stofnun deiliskútuleigunnar Hopps í Vestmannaeyjum.

Í umsögn ráðsins segir að Davíð hafi sýnt mikla framsýni og verið ötull talsmaður umhverfisvænna lausna og nýsköpunar í Vestmannaeyjum.

Smáragata 2 – snyrtilegasti garðurinn. Mynd/aðsend.

 

Hátún 14 – snyrtilegasta eignin. Mynd/aðsend

 

Hábær hlaut viðurkenningu fyrir endurbætur til fyrirmyndar. Mynd/aðsend.

 

Gott var valið snyrtilegasta fyrirtækið. Mynd/aðsend.

Nýjustu fréttir

Umhverfisviðurkenningar Vestmannaeyjabæjar afhentar
Herrakvöld handknattleiksdeildar á laugardaginn
Bæjarstjórn fundar – fylgst með fundinum í beinni
Feta slóð Flakkarans um hraunið
H-verslun heldur annað hlaup í Eyjum
Önnur uppsögn starfsmanns Vestmannaeyjabæjar úrskurðuð ólögmæt
Framkvæmdir við innisundlaugina langt fram úr áætlun
Börnin eru ekki vandamálið
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.