Umhverfisviðurkenningar Vestmannaeyjabæjar afhentar

Umhverfisviðurkenningar Vestmannaeyjabæjar fyrir árið 2026 voru afhentar við athöfn í Ráðhúsinu í dag. Viðurkenningar voru veittar í fimm flokkum og var Hátún 14 valið snyrtilegasta eignin. Hildur Sólveig Sigurðardóttir, formaður umhverfis- og skipulagsráðs, sagði óvenjumargar tilnefningar hafa borist í ár. Eftir vettvangsskoðun fulltrúa allra flokka í ráðinu hefði verið úr vöndu að ráða enda væru […]

Herrakvöld handknattleiksdeildar á laugardaginn

Herrakvöld handknattleiksdeildar ÍBV fer fram næstkomandi laugardag í Oddfellowhúsinu. Ási Guðna stígur á stokk og mega gestir eiga von á skemmtilegu og fjörugu kvöldi í góðum félagsskap. Húsið opnar kl. 19:00. Miðinn kostar 9.000 krónur og er miðasalan í fullum gangi á Hárstofu Viktors og Birkis. Einnig er hægt að senda tölvupóst á vilmar@ibv.is til […]

Bæjarstjórn fundar – fylgst með fundinum í beinni

Bæjarstjórn Vestmannaeyja kemur saman til fundar í dag, miðvikudaginn 9. september, klukkan 14. Fundurinn verður haldinn í Ráðhúsinu og verður hægt að fylgjast með honum í beinni útsendingu hér á Eyjafréttum. Alls eru tíu mál á dagskrá. Þar á meðal eru samgöngumál, kaup Vestmannaeyjabæjar á almannavarnalögninni NSL-4 og fjármögnun kaupanna, auk kosninga í ráð, nefndir […]

Feta slóð Flakkarans um hraunið

Framkvæmdir eru hafnar við lagningu göngustígs frá útsýnisskála Sjónarhorns flakkarans, listaverks Ólafs Elíassonar í nýja hrauninu við Eldfell. Stígurinn er annar áfangi listaverksins en sá fyrsti, útsýnisskálinn, var vígður í maí. Verkið samanstendur af skálanum og göngustíg sem liggur um hraunið og umhverfis Eldfell. Stígurinn fylgir sömu leið og svonefndur Flakkari fór í Heimaeyjargosinu árið […]

H-verslun heldur annað hlaup í Eyjum

H-verslun stendur fyrir hlaupi í Eyjum n.k. laugardag (12. september) og þetta er í annað sinn sem verslunin stendur fyrir hlaupinu hér í Eyjum. Hlaupið hefst við H-pop up verslunina að Heiðarvegi 9b klukkan 12 og er fimm kílómetra langt. Minna Björk Ágústsdóttir, mun leiða hópinn. Ekki þarf að skrá sig fyrirfram og er þátttakendum […]

Önnur uppsögn starfsmanns Vestmannaeyjabæjar úrskurðuð ólögmæt

default

Innviðaráðuneytið hefur úrskurðað að ákvörðun Vestmannaeyjabæjar um að segja starfsmanni sveitarfélagsins upp störfum hafi verið ólögmæt. Ráðuneytið taldi að uppsögnin hefði ekki uppfyllt skilyrði kjarasamnings og því ekki verið byggð á lögmætum grundvelli. Úrskurðurinn var kveðinn upp 11. júní síðastliðinn og varðar ákvörðun Vestmannaeyjabæjar frá 19. nóvember 2024. Starfsmanninum var sagt upp með þriggja mánaða […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.