Feta slóð Flakkarans um hraunið
Göngustígurinn frá útsýnisskála Sjónarhorns flakkarans er farinn að taka á sig mynd. Ljósmynd/Halldór B. Halldórsson.

Framkvæmdir eru hafnar við lagningu göngustígs frá útsýnisskála Sjónarhorns flakkarans, listaverks Ólafs Elíassonar í nýja hrauninu við Eldfell.

Stígurinn er annar áfangi listaverksins en sá fyrsti, útsýnisskálinn, var vígður í maí. Verkið samanstendur af skálanum og göngustíg sem liggur um hraunið og umhverfis Eldfell.

Stígurinn fylgir sömu leið og svonefndur Flakkari fór í Heimaeyjargosinu árið 1973. Flakkarinn var stór hraunfylla sem brotnaði úr Eldfelli og flaut ofan á glóandi hraunstraumnum í átt að innsiglingunni áður en framrás hans var stöðvuð með hraunkælingu.

Vestmannaeyjabær fékk rúmlega 107 milljóna króna styrk úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða til verksins. Um var að ræða hæsta styrk sjóðsins árið 2026 og fjármagnar hann lagningu stígsins að fullu. Markmið framkvæmdarinnar er meðal annars að bæta öryggi gesta og vernda viðkvæmt náttúruumhverfi svæðisins.

Halldór B. Halldórsson fór á vettvang og tók meðfylgjandi myndband af framkvæmdunum.

Play Video

Nýjustu fréttir

Herjólfur siglir til Þorlákshafnar síðdegis
Dýpkuðu 32 þúsund rúmmetra við Landeyjahöfn
Logn og bros á Stórhöfða
Slökkviliðsstjóri söðlar um eftir tíu ár í starfi
Útlit fyrir breyttar siglingar Herjólfs næstu daga
Skjöldur haldinn í þriðja sinn
Erlingur til GWD Minden – Bergvin tekur við sem aðalþjálfari ÍBV
Heimir fagnaði 3-0 sigri gegn Ísrael
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.