Bæjarstjórn Vestmannaeyja kemur saman til fundar í dag, miðvikudaginn 9. september, klukkan 14. Fundurinn verður haldinn í Ráðhúsinu og verður hægt að fylgjast með honum í beinni útsendingu hér á Eyjafréttum.
Alls eru tíu mál á dagskrá. Þar á meðal eru samgöngumál, kaup Vestmannaeyjabæjar á almannavarnalögninni NSL-4 og fjármögnun kaupanna, auk kosninga í ráð, nefndir og stjórnir.
Þá verður fjallað um umhverfismat vegna fyrirhugaðs stórskipakants og grjótleitar, umhverfi og frágang við Sprönguna og breytingar á gjaldskrá og innheimtureglum leikskóla.
Bein útsending frá fundinum hefst hér á Eyjafréttum klukkan 14.