Urðu af 17 skipakomum í sumar
Lettbatur Skemmtiferdaskip Tvö
Líf í höfninni. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Á fundi framkvæmda og hafnarráðs í síðustu viku fór Dóra Björk Gunnarsdóttir, hafnarstjóri yfir þróun í komum skemmtiferðaskipa síðustu 5 árin. Einnig fór hún yfir þau tækifæri og ógnanir sem hún sér fyrir á komandi árum.

Í afgreiðslu ráðsins segir að Vestmannaeyjahöfn hafi orðið af tekjum vegna frátafa sökum veðurs og aðstöðuleysis fyrir stærri skip. Fjórðungur skipa sem áttu bókað í sumar þurftu frá að hverfa sem þýddi að um fimmtán þúsund farþegar stigu ekki á land í Vestmannaeyjum með tilheyrandi tekjumissi fyrir samfélagið. Ljóst er að setja þarf aukinn kraft í vinnu við framtíðarskipulag Vestmannaeyjahafnar.

Dóra Björk segir í samtali við Eyjafréttir aðspurð um hversu margar skipakomur hafi verið til Eyja í sumar að nú þegar hafi komið 86 skip. Hún segir jafnframt að 17 skip hafi ekki komið í sumar vegna veðurs. Spurð hvað sé áætlað tekjutap vegna skipa sem höfðu boðað komu sína en ekki komið sé segir hún að þau hafi ekki haft tök á að reikna það út en verði gert á næstunni.

Nýjustu fréttir

Tími til kominn að taka næsta skref
Ákvarðanir fyrir framtíðarkynslóðir
Í dag eru 75 ár frá Glitfaxaslysinu
Hárígræðslur í Tyrklandi 
Húsið of hátt – skipulagi breytt eftir á og nágrannar ósáttir
Elliði fyrir leikinn gegn Dönum
Spáð í spilin fyrir stórleikinn í kvöld á EM
Tíðarandi liðinna ára í myndum í Sagnheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.