Útflutningsverðmæti sjávarafurða nam 29,6 milljörðum króna í september. Það er í samræmi við bráðabirgðatölur Hagstofunnar og fjallað er um á Radarnum. Þetta er rúmlega 26% aukning í krónum talið frá september í fyrra. Aukningin í erlendri mynt er minni vegna lækkunar á gengi krónunnar á tímabilinu, eða sem nemur um 10%. Af einstaka tegundum munaði mest um þorskinn í september. Nam útflutningsverðmæti þorskafurða í mánuðinum 12,6 milljörðum króna, sem er 26% aukning á milli ára í erlendri mynt.
Aukning í krónum en samdráttur í erlendri mynt
Á fyrstu 9 mánuðum ársins er útflutningsverðmæti sjávarafurða komið í 196 milljarða króna samanborið við um 192 milljarða á sama tímabili í fyrra. Það er rétt rúmlega 2% aukning í krónum talið á milli ára. Þessi lítilsháttar hækkun skrifast að öllu leyti á þá lækkun sem orðið hefur á gengi krónunnar, enda mælist rúmlega 7% samdráttur í útflutningsverðmætum sjávarafurða á tímabilinu í erlendri mynt. Þann samdrátt má að stærstum hluta rekja til samdráttar í útfluttu magni á fyrri hluta árs, en eins hefur afurðaverð lækkað og hafa áhrifin orðið æ meiri eftir því sem liðið hefur á árið. Vart þarf að nefna að hér gætir áhrifa COVID-19, en líkt og við höfum fjallað um á Radarnum þá hefur sjávarútvegur ekki farið varhluta af því ástandi.
Þorskurinn fyrirferðamikill
Útflutningsverðmæti þorskafurða er komið í tæpa 98 milljarða króna á fyrstu 9 mánuðum ársins, eins og sjá má á myndinni hér á undan. Það er um 4% aukning í útflutningsverðmætum þorskafurða frá sama tímabili í fyrra, mælt í erlendri mynt. Er verðmæti þorskafurða þar með 50% af heildarverðmætum útfluttra sjávarafurða á árinu.
Þrátt fyrir að þorskur sé og hafi verið stærsta einstaka tegundin í útflutningsverðmætum sjávarafurða, þá er ofangreind hlutdeild óvenju há í ár. Á sama tímabili í fyrra var hún 45% og á fyrstu árum þessa áratugar var hún í kringum 31%. Þessi aukna hlutdeild skýrist af mörgum þáttum. Má hér fyrst nefna þá aukningu sem orðið hefur á aflamarki þorsks undanfarinn áratug, sem er árangur sem náðst hefur með minnkandi sókn í stofninn (sjá nánar hér). Þessi aukna hlutdeild kemur þó ekki af hinu góða einu saman, enda er hún einnig vegna samdráttar í útflutningsverðmætum annarra tegunda. Ber hér hæst að nefna loðnubrest í upphafi árs, en sala loðnubirgða vóg nokkuð drjúgt í útflutningstölum síðasta árs en verður eðlilega ekki endurtekin í ár. Eins hefur COVID-19 faraldurinn, með tilheyrandi sóttvarnaraðgerðum víða um heim, dregið verulega úr spurn eftir ýmsum tegundum, og er hér nærtækast að nefna ufsa. Á myndinni hér fyrir neðan má sjá helstu tegundirnar, að þorski undanskildum. Gefur auga leið að samdráttur hefur orðið á milli ára í flestum tilvikum.
Óvenjulegir tímar leiða til óhefðbundinna leiða
Þrátt fyrir að útflutningsverðmæti þorskafurða hafi aukist á milli ára þýðir það ekki að COVID-19 hafi ekki haft nein áhrif á framleiðslu og sölu á þorskafurðum. Óvissan á mörkuðum hefur verið veruleg víða um heim í kjölfar sóttvarnaraðgerða, með tilheyrandi lokunum á veitingastöðum og hótelum, svo fátt eitt sé nefnt. Eins hafa sóttvarnaraðgerðir hér heima haft áhrif á afurðavinnslu þótt íslensk sjávarútvegsfyrirtæki hafa lagt ríka áherslu á að vinnsla sé að langstærstum hluta áfram hér á landi. COVID-19 hefur þannig sett strik í reikninginn og hefur meðal annars leitt til þess að talsvert meira hefur verið flutt út af heilum ferskum þorski en í venjulegu árferði. Sá sveigjanleiki er þó vissulega nauðsynlegur í ástandi sem þessu. Sú aukning skýrist þó einnig að hluta til af því að ein stærsta fiskvinnsla landsins, fiskvinnsla Brims á Norðurgarði, var lokuð frá því seint í apríl til júlíloka vegna endurnýjunar á tækjum og húsnæði. Hvað sem þessu líður er óhætt að segja að sú ríka áhersla sjávarútvegsfyrirtækja, að vinna þorskafurðir hér heima, skín nokkuð vel í gegn í framleiðslu og útflutning á þorskafurðum á þessum fordæmalausum tímum.




















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.