Útkall - Helgaður Grindvíkingum og Vestmannaeyingum

Nýjasti Útkallsþátturinn á visir.is, sem er öllum aðgengilegur, verður helgaður Grindvíkingum og Vestmannaeyingum. Annars vegar hetjuleg björgun fyrir utan  Grindavík þegar 12 skiprotsmönnum af Gjafari frá Vestmannaeyjum var bjargað á land eftir að báturinn strandaði þar í  foráttubrimi.

Einnig verður sagt frá annarri björgun mánuði fyrr –  þegar sami bátur flutti 440 manns til Þorlákshafnar þegar eldgosið hófst á Heimaey. Óttar Sveinsson ræðir við Guðjón Rögnvaldsson, vélstjóra á Gjafari og Ragnheiði Einarsdóttur, eiginkonu hans. Í þættinum verða tilfinningaríkir endurfundir þegar Margeir Jónsson, einn björgunarmannanna úr Grindavík, kemur óvænt og heilsar upp á þau hjónin. Þar ná þau að þakka fyrir lífgjöf Guðjóns.

Þátturinn verður frumsýndur á sunnudag en annars eru allir Útkallsþættirnir hér: https://www.visir.is/sjonvarp/s/428/utkall

Gjafar VE á leið til hafnar í Vestmannaeyjum.

Nýjustu fréttir

Elís Þór æfði með A-landsliðinu
Treysti sér ekki til að vera heima og horfa á leikinn
Gagnrýna samning bæjarins við rekstraraðila heilsuræktar
Lönduðu fullfermi í Grindavík
Líf og fjör á Suðurlandi: Barnamenningardagar framundan
Tanja er íþróttamaður mánaðarins
Tannverndarvika
Gyllta flóran frá Féló vann Stíl 2026
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.