Útvegsbændafélagið aldargamalt
21. október, 2020

Útvegsbændafélag Vestmannaeyja fagnar aldarafmæli sínu um þessar mundir eða réttara væri líklega að segja á kóvíd-tímum að nú séu liðin 100 ár frá stofnun félagsins en hátíðarhöld af því tilefni bíði um sinn.

Félagið hét upphaflega Útvegsbænda- og atvinnurekendafélag Vestmannaeyja, stofnað 20. október 1920, og skráður tilgangur þess meðal annars að

stuðla að sanngirni og samræmi í kaupgjaldi til lands og sjávar, þannig að hvorki vinnuveitendur né vinnuþiggjanda sé misboðið, en reynt eftir megni að halda fullu jafnvægi milli beggja aðila.”

Á þessum tíma voru um 70 vélbátar í eigu félagsmanna og fyrsti formaður var Viggó Björnsson bankastjóri.

Núverandi formaður útvegsbænda er Sindri Viðarsson, sviðsstjóri uppsjávarsviðs Vinnslustöðvarinnar.

Útvegsbændafélagið var frá upphafi drifkraftur og afl í félagsmálum og lagði áherslu á hagræðingu í útgerð og sjávarútvegi. Snemma sendi félagið til að mynda fulltrúa sína til Noregs til að kanna hvernig útgerðarmenn þar í landi gerðu út á sem hagkvæmastan hátt.

Hlutverk félagsins var annars að gæta hagsmuna útgerðarinnar í smáu sem stóru og í janúar 1939 tóku útvegsbændur í Eyjum þátt í því að stofna Landssamband íslenskra útvegsmanna á fundi í Reykjavík. Stofnendur LÍÚ voru Félag íslenskra botnvörpuskipaeigenda, Útvegsbændafélag Vestmannaeyja, Útvegsbændafélag Keflavíkur (stofnað 1936) og nýstofnað Útvegsmannafélag Hafnarfjarðar.

Í tilefni sjötugsafmælis Útvegsbændafélagsins 1990 hafði Árni Johnsen tal af nokkrum félagsmönnum fyrir Morgunblaðið og hafði þá eftir þáverandi formanni, Hilmari Rósmundssyni:

„Víst eru menn uggandi um framhaldið. Það er mikið áhyggjuefni að allir helstu nytjastofnar við landið eru fullnýttir og útlitið er til dæmis mjög dökkt með loðnuna. Vestmannaeyjar njóta hins vegar sterkrar stöðu og hlutfall verðmæta úr sjó hefur um langt árabil verið á bilinu 10-15% frá Vestmannaeyjum.“

 

Sindri bjartsýnn og glaður

Þetta var fyrir þrjátíu árum en hvað skyldi vera efst í huga núverandi formanns útvegsbænda á stórafmælisárinu 2020, Sindri Viðarsson?

„Á slíkum tímamótum er maður einfaldlega glaður og bjartsýnn! Það er merkur áfangi að ná því að vera aldargamall og lýsir kannski best félagsmönnum að allan tímann hefur félagið verið virkt og starfandi. Til þess þarf bæði dugnað og vilja.

Auðvitað hafa orðið miklar breytingar í sjávarútvegi á þessum tíma og fyrirtækjum og skipum hefur fækkað en fyrirtækin sem eftir standa eru sterk og sýna og sanna að þau standa með samfélaginu og eru stoðir byggðarlagsins. Þau eru jafnframt frumkvöðlar að mörgu sem við kemur útgerð og fiskveiðum.

Vestmannaeyjar eru og hafa verið ein stærsta verstöð landsins. Ekkert bendir til annars en að svo verði áfram þegar saman fer skynsamlegt fiskveiðistjórnarkerfi, gott starfsfólk og öflug fyrirtæki.

Þó gefi aðeins á bátinn núna er í raun bara eitt stórverkefni sem við, þjóðin og heimsbyggðin öll þurfum að leysa í sameiningu. Um farsæla niðurstöðu þess verkefnis getið þið lesið þegar 200 ára saga Útvegsbændafélags Vestmannaeyja kemur út!

Veirufaraldurinn setur vissulega strik í reikninginn víða en útvegsbændur bíða rétt eins og aðrir spenntir eftir því að ástandið lagist og lífið færist í fyrri skorður. Afmælisfagnað höldum við hvenær svo sem færi gefst til slíks enda ekki á hverjum degi sem að hægt er að fagna aldarafmæli.“

  • Úrklippurnar sem með fylgja eru úr Morgunblaðinu í október 1990 í tilefni sjötugsafmælis Útvegsbændafélags Vestmannaeyja og í nóvember 1986 í tilefni af aðalfundi Landssambands íslenskra útvegsmanna í Eyjum.
Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
4. tbl. 2025
4. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
viðburðir
Ársþing ÍBV
13. maí 2025
20:00
Ársþing ÍBV
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst