Valur og ÍBV mættust í níundu umferð Olís deildar kvenna í handknattleik í Vodafone-höllinni í dag en leiknum lauk með stórsigri Vals, 28-17. Ester �?skardóttir meiddist í upphitun og kom ekkert við sögu í leiknum fyrr en á 40. mínútu.
ÍBV skoraði fyrstu tvö mörk leiksins en Valur jafnaði metinn 3-3 og eftir það var jafnræði með liðunum og þau skiptust á að hafa eins marks forystu framan af fyrri hálfleik. �?að sem einkenndi leikinn var mikil hraði og mikið var um sóknarfeila á báða bóga og hefðu mörkin átt að vera mun fleiri í fyrri hálfleik en staðan í hálfleik var 11-8 fyrir Val.
Valsstelpur komu mun ákveðnari inn í síðari hálfleik og skoruðu fyrstu þrjú mörkin og var forskotið þá orðið sex mörk og í raun allt of mikið fyrir lið ÍBV sem voru ekki upp á sitt besta í dag en stelpurnar áttu aldrei möguleika í síðari hálfleik. Valur náði mest þrettán marka forskoti undir lok leiks, 28-15 en lokatölur voru 28-17.