Vann 37 milljónir á Þjóðhátíð í Eyjum
Fullkominn endir á skemmtilegri helgi í Herjólfsdal
DSC 8946
Stálheppinn gestur á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum var á leið í Herjólfsdal þegar hann ákvað að kaupa 10 raða miða í Eurojackpot með Lottó appinu. Eyjafréttir/Eyjar.net: ÓPF

Stálheppinn gestur á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum var á leið í Herjólfsdal þegar hann ákvað að kaupa 10 raða miða í Eurojackpot með Lottó appinu. Hinn heppni gestur valdi 10 raðir í sjálfval en eyddi síðustu röðinni og valdi afmælisdaga fjölskyldunnar sem síðustu röðina. Hann sagði svo í gríni við vini sína að þeir þyrftu ekki að hafa áhyggjur af kostnaðinum um helgina, hann myndi borga með Eurojackpot vinningnum.

Skemmti hann sér svo vel um helgina og pældi ekkert meira í miðanum sínum fyrr en hann fékk símtal eftir helgina frá starfsmanni Getspár. Var hann þá staddur í vinnu sinni, frekar þreyttur eftir helgina og hélt í fyrstu að vinir sínir væru að gera símahrekk. Símtalið var þó enginn hrekkur því þessi ungi karlmaður hafði unnið tæpar 37 milljónir í þriðja vinning í Eurojackpot og var það síðasta röðin, með afmælisdögum fjölskyldunnar, sem skilaði honum vinningnum góða.

Hinn heppni ætlar að nýta vinninginn til að kaupa sína fyrstu íbúð en hann býr hjá foreldrum sínum og hefur verið að skoða sig um á fasteignamarkaðnum. Öllum vinningshöfum hjá Getspá býðst fjármálaráðgjöf frá utanaðkomandi sérfræðingum og ætlar vinningshafinn að nýta sér hana, segir í tilkynningu frá Íslenskri Getspá. Þar er vinningshafanum óskað innilega til hamingju og um leið er þakkað fyrir veittan stuðning sem skiptir gríðarlega miklu máli fyrir fatlað fólk, sem og íþrótta- og ungmennafélögin í landinu þar sem þau njóta góðs af allri sölu Lottó.

Nýjustu fréttir

ÍBV og Macron í samstarf
Nýtt skólaár hafið hjá Grunnskóla Vestmannaeyja
Fimm ástæður fyrir JÁ-inu mínu
Stefnir í stærsta ágústmánuðinn í botnfiskvinnslu í langan tíma
Skólasetning GRV fór fram í morgun
Rúmlega tíundi hver hefur kosið utan kjörfundar
Ný strætóáætlun til og frá Landeyjahöfn
Vetrarstarf ÍBV hefst í dag
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.