Varaafl í Vestmannaeyjum stendur til bóta

Bæjarráð fundaði í hádeginu í gær þar sem meðal annars var til umræðu úrbætur á varaafli í Vestmannaeyjum. Bæjarstjóri gerði grein fyrir svarbréfi sem henni barst frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra við bréfi bæjarstjóra um nauðsyn á úrbótum á varaafli í Vestmannaeyjum, þar sem m.a. kom fram að úrbóta er þörf ef ekki eigi að skapast hætta á verulegu efnahagslegu tjóni komi til óveðurs eða annarra aðstæðna þar sem þörf er á varaafli og nokkrar aðgerðir reifaðar. Í svarbréfi ráðherra er bent á að sumar af umræddum aðgerðum séu komnar í vinnslu að frumkvæði ráðuneytisins, þ.e. um aðkomu Landsnets að lausn málsins og að stofnunin flýti áformum sínum um að koma Vestmannaeyjum í svokallaða N-1 afhendingu á raforku með VME4. Jafnframt kemur fram í bréfi ráðherra að ráðuneytið muni fylgja eftir gagnvart Landsneti að bæta stöðu færanlegs og staðbundins varaafls í Eyjum eins og áætlanir Landsnet segja til um. Þá er Vestmannaeyjabæ bent á það að það er ekkert því til fyrirstöðu að bæjarfélagið eigi frumkvæði að tvíhliða samtali við Landsnet um uppbyggingu á varaafli í Vestmannaeyjum.

Nýjustu fréttir

Árni Árnason – Þurrabúðarlíf í Eyjum um aldamótin 1900
34,8 milljónir í fjárhagsaðstoð í fyrra
Safna fyrir innileikvelli fyrir börn 
85 ára saga Rauða krossins í Eyjum – opið hús í Arnardrangi á sunnudag
Skýr skilaboð frá flokksmönnum 
Framtíðarsýn og grunngildi – Hvert erum við að fara?
Landeyjahöfn – Þurfum öflugt dæluskip
Viljum frekar byggja upp en að rífa niður 
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.