Vegleg verðlaun í Puffin Run og fyrsti ráshópur
Magnús ásamt Guðna Th. Jóhannessyni við rásmark Puffin Run 2020 sem fram fór laugardaginn 9. maí.

Nú hafa um 1100 hlauparar skráð sig í Puffin Run í Vestmannaeyjum sem haldið verður laugardaginn 8. maí. Þetta er hátt í fjórföldun á keppendafjölda síðasta árs. Frá þessu er greint á vefnum hlaup.is. Í ár verða veitt vegleg peningaverðlaun til fyrstu þriggja karla og kvenna og er það nokkur nýjung að svo vegleg verðlaun séu veitt. Eftirfarandi peningaupphæðir verða veittar sem verðlaun:

Fyrsta sæti 100.000 kr.
Annað sæti 70.000 kr.
Þriðja sæti 50.000 kr.

Hlauphaldarar ætla að ræsa í fyrsta ráshóp hröðustu hlauparana í kvenna- og karlaflokki og eru þeir hlauparar sem telja sig verða undir eftirtöldum tíma, beðnir um að senda póst á maggibraga@outlook.com.

Karlar undir 1:45
Konur undir 2:00

Brautarmetin í hlaupinu eiga Þórólfur Ingi Þórsson 1:24:19 og Thelma Björk Einarsdóttir 1:44:16.

Nýjustu fréttir

Metmæting á kótilettukvöldi í Höllinni
Aron Lucas Vokes með slitið krossband
Agnar Smári Jónsson með stórsýningu er hann sneri aftur á völlinn í Eyjum í dag
Sandra tryggði ÍBV sigur í blálokin gegn Fram
Bleikur leikur hjá Eyjakonum – allur aðgangseyrir til Krabbavarnar
Gul viðvörun á Suðurlandi – hviður geta farið yfir 30 m/s
Arnór maður leiksins í sigri Karlskrona
Sálmastund með þér
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.