Verðlag á matvöru lækkar milli mánaða
innkaup_kerra
Nýjustu mælingar verðlagseftirlitsins benda til þess að verðlag hafi lækkað um 0,2%  milli júlí og þess sem af er ágústmánaðar.

Samkvæmt verðlagseftirliti ASÍ hefur verðlag á matvöru lækkað frá júlímánuði samkvæmt greiningu verðlagseftirlitsins, í fyrsta sinn frá undirritun kjarasamninga. „Þessi þróun var komin vel á leið fyrir opnun nýrrar lágvöruverðsverslunar, Prís, um helgina. Verðlag í  Nettó, Kjörbúðinni og Krambúðinni hækkaði umtalsvert í júlí eins og verðlagseftirlitið benti á í nýlegri verðkönnun. Verðlag þar lækkaði hins vegar í  ágúst. Verðlag í Bónus hækkar lítillega frá fyrri mánuði og í  Hagkaup stóð það í stað milli mánaða. Sé litið yfir lengra tímabili sést að verðlag í Krónunni hefur frá undirritun kjarasamninga hækkað minna en í Bónus,“ segir í tilkynningu.

Verðlækkanir í verslunum Samkaupa

Frá undirritun kjarasamninga hefur hækkun á verðlagi matvöru verið 0,2-0,7% á mánuði. Óvenjumikil hækkun mældist á matvöru síðasta mánuði, um 0,7%. Skýrðist sú hækkun að mestu af hækkunum í verslunum Samkaupa. Nýjustu mælingar verðlagseftirlitsins benda til þess að verðlag hafi lækkað um 0,2%  milli júlí og þess sem af er ágústmánaðar. Verð í Nettó lækka í mörgum flokkum – mest hækka gæludýravörur, um 0,9%, en langflestir flokkar lækka, þeirra mest flokkur léttmjólkur, um 4,4%.

Mestar verðhækkanir í Bónus frá kjarasamningum

Yfir sumarmánuðina, frá maí til dagsins í dag, hefur verðlag hækkað mest í Bónus. Hástökkvari sumarsins í Bónus er Arla Havarti 300gr ostur, sem hefur hækkað um 67%. Aðrar vörur sem hafa hækkað mikið eru:

  • Kiwi í lausu: 30%
  • Hornafjarðar rauðar kartöflur, 1kg: 25%
  • SFG gulrætur, 500gr: 25%
  • Hellman’s dressing, 250ml: 24%
  • Freyju Rís, 70gr: 22%
  • Stjörnugrís grísasnitsel, kílóverð: 9,5%

Þeir flokkar sem vega mest í verðlagshækkun Bónus yfir sumarið eru ávextir, kjöt, fiskur og sælgæti.

Áhrif af Prís ekki komin fram

Um helgina opnaði lágvöruverðsverslunin Prís. Samkvæmt fyrstu athugun verðlagseftirlitsins á opnunardegi var Prís með lægra verð en Bónus og Krónan í um 96% tilfella. Í yfir 10% tilfella var munurinn meira en 10% og í meira en fjórðungi tilfella yfir 5%. Samdægurs voru verð á MS ostum lækkuð í Bónus, niður að verðinu sem bauðst í Prís. Áhrifin af opnun Prís eru ekki komin fram nema að örlitlu leyti í vísitölum verðlagseftirlitsins, enda var verslunin opnuð í blálok tímabilsins sem hér er til skoðunar.

Um könnunina

Verðlagsbreytingar eru reiknaðar með vigtun vöruflokka og verslana. Þegar talað er um breytingu á verðlagi er um að ræða veginn útreikning, en breyting á verði merkir stakan samanburð eða óvegið meðaltal.

Við verðsamanburð eru skoðuð meðalverð sérhverrar vöru yfir mánuðinn (eða 6-13. mars þegar borið er saman við undirritun kjarasamninga) og borin saman við meðalverð mánuðarins á undan. Breytingar eru svo vegnar útfrá mikilvægi vöruflokka. Fjöldi samanburða í hverjum mánuði er um eða yfir 20.000.

Frétt frá ASÍ.

 

 

Nýjustu fréttir

Skólamál og ábyrgð í opinberri umræðu
Eyjamenn með stórsigur í Suðurlandsslagnum
Eyjarnar landa í Eyjum í dag
Útför: Þórunn Pálsdóttir
Frá mjólkurkælinum til verslunarstjóra
Herjólfur slær met 
Aglow samvera í kvöld
Suðurlandsslagur í Eyjum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.