Stjórn Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga hefur fjallað um tillögur fagráðs atvinnu og nýsköpunar annars vegar og fagráðs menningar hins vegar, um úthlutun verkefnastyrkja úr Uppbyggingarsjóði Suðurlands. Um var að ræða fyrri úthlutun sjóðsins á árinu 2020. Umsóknir voru margar að þessu sinni eða 154 talsins. Í flokki atvinnu- og nýsköpunarverkefna bárust 65 umsóknir og 90 umsóknir í flokki menningarverkefna.
Að þessu sinni var um það bil 39 mkr. úthlutað til 88 verkefna úr báðum flokkum. Samþykkt var að veita 27 verkefnum styrk í flokki atvinnu- og nýsköpunarverkefna um samtals tæplega 17 mkr. og 61 verkefni í flokki menningarverkefna sem hlutu samanlagt rúmlega 22 mkr.
Nokkur verkefni sem rekja má til Vestmannaeyja hlutu styrk frá sjóðnum að þessu sinni.
í flokki atvinnu- og nýsköpunarverkefna
í flokki menningarverkefna.
Lista yfir verkefni sem hlutu styrki má sjá HÉR




















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.