Vestmannaeyjabær ósammála lagamati ráðuneytisins
Engin ákvörðun tekin um dómsmál :: Bærinn gefur ekki upp kostnað vegna lögfræðiráðgjafar
radhustrod_ráðhús_merki_cr
Ráðhús Vestmannaeyja. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS
TMS M Frett 26 (2)
Tryggvi Már
Sæmundsson

Vestmannaeyjabær er ósammála því lagalega mati innviðaráðuneytisins að uppsögn starfsmanns sveitarfélagsins hafi ekki verið byggð á lögmætum grundvelli. Bærinn hefur þó ekki tekið ákvörðun um hvort látið verði reyna á niðurstöðuna fyrir dómstólum.

Þetta kemur fram í svörum Vestmannaeyjabæjar við sjö spurningum Eyjafrétta vegna málsins sem fjallað var um fyrr í vikunni. Bærinn veitir ekki upplýsingar um hugsanlegar sáttaviðræður eða fjárhagslegar skuldbindingar og tilgreinir ekki kostnað vegna lögfræðiráðgjafar í málinu.

Vestmannaeyjabær óskaði eftir því að inngangur bæjarins og svör við einstökum spurningum yrðu birt óbreytt og í heild sinni. Þau fara hér á eftir:

Í upphafi vill Vestmannaeyjabær taka fram að um er að ræða viðkvæmt mál sem varðar bæði persónuverndarhagsmuni og réttindi einstaklinga. Af þeim sökum getur sveitarfélagið ekki tjáð sig um alla þætti þess.

1. Hver eru viðbrögð Vestmannaeyjabæjar við niðurstöðu ráðuneytisins?

Vestmannaeyjabær hefur móttekið niðurstöðu ráðuneytisins en er ósammála þeim afmarkaða lagagrundvelli sem hún er byggð á.

2. Hvers vegna taldi bærinn heimilt að byggja uppsögnina á atvikum sem áttu að hafa gerst áður en starfsmanninum var veitt skrifleg áminning?

Vestmannaeyjabær taldi að fyrir lægju nokkur atvik og upplýsingar sem gáfu tilefni til að grípa til viðeigandi aðgerða. Við meðferð málsins lagði sveitarfélagið áherslu á lagalegar skyldur sínar sem vinnuveitandi gagnvart starfsfólki og starfsemi sinni. Ráðuneytið komst að annarri niðurstöðu um túlkun þeirra ákvæða kjarasamnings sem um málið giltu. Sveitarfélagið er ósammála því lagalega mati sem þar kemur fram.

3. Hefur bærinn unað úrskurðinum eða stendur til að láta reyna á niðurstöðuna fyrir dómstólum?

Vestmannaeyjabær hefur farið yfir úrskurðinn og metið réttaráhrif hans. Að svo stöddu hefur ekki verið tekin ákvörðun um frekari dómsmeðferð málsins.

4. Hefur úrskurðurinn leitt til sáttar, bótagreiðslna eða annarra fjárhagslegra skuldbindinga fyrir Vestmannaeyjabæ?

Vestmannaeyjabær getur ekki tjáð sig um hugsanleg samskipti, viðræður eða fjárhagsleg málefni sem kunna að lúta að einstaklingum.

5. Hefur málið leitt til breytinga á verklagi bæjarins við meðferð starfsmannamála, sérstaklega þegar uppsögn byggist á skriflegri áminningu?

Þegar upp koma starfsmannamál sem þessi eru þau sett í farveg hjá fagteymi sem vinnur að meðferð og eftirfylgni máls. Vestmannaeyjabær leitast ávallt við að læra af úrlausnum dómstóla, ráðuneyta og annarra stjórnvalda. Verklag sveitarfélagsins er reglulega yfirfarið og uppfært eftir því sem tilefni er til. Sú vinna fer fram óháð því hvort niðurstaða einstakra mála fellur sveitarfélaginu í hag eða ekki.

6. Hvenær fengu stjórnendur bæjarins og kjörnir fulltrúar upplýsingar um úrskurðinn og hefur hann verið tekinn formlega fyrir innan stjórnsýslunnar?

Úrskurðurinn var kynntur þeim stjórnendum og starfsmönnum sem þurftu að koma að eftirfylgni hans vegna starfa sinna. Málið hefur verið til umfjöllunar innan stjórnsýslu sveitarfélagsins eftir því sem nauðsynlegt hefur verið vegna mats á réttaráhrifum úrskurðarins og næstu skrefum í málinu.

7. Hver er kostnaður Vestmannaeyjabæjar vegna lögfræðiráðgjafar og annarrar aðkeyptrar þjónustu í tengslum við málið?

Vestmannaeyjabær nýtir, líkt og önnur sveitarfélög og opinberir aðilar, lögfræðiráðgjöf eftir því sem þörf krefur í viðkvæmum og flóknum starfsmannamálum. Kostnaður vegna einstakra mála er hluti af rekstri sveitarfélagsins og fer eftir umfangi og eðli þeirra verkefna sem upp koma. Óski Eyjafréttir eftir nánari upplýsingum um tiltekna kostnaðarliði verður slík beiðni metin samkvæmt ákvæðum upplýsingalaga og öðrum lögum sem um aðgang að gögnum og upplýsingum gilda.


 

Fyrri umfjöllun Eyjafrétta um sama mál: 

 

Önnur uppsögn starfsmanns Vestmannaeyjabæjar úrskurðuð ólögmæt

defaultInnviðaráðuneytið hefur úrskurðað að ákvörðun Vestmannaeyjabæjar um að segja starfsmanni sveitarfélagsins upp störfum hafi verið ólögmæt. Ráðuneytið taldi að uppsögnin hefði ekki uppfyllt skilyrði kjarasamnings og því ekki verið byggð á lögmætum grundvelli. Úrskurðurinn var kveðinn upp 11. júní síðastliðinn og varðar ákvörðun Vestmannaeyjabæjar frá 19. nóvember 2024. Starfsmanninum var sagt upp með þriggja mánaða […]

Nýjustu fréttir

Vestmannaeyjabær ósammála lagamati ráðuneytisins
Eyjamenn áberandi meðal styrkþega Terra
Hjörtur Leó sigurvegari eldri flokks á Þjóðhátíð
Nýtt dýpkunartímabil að hefjast í Landeyjahöfn
Íþróttamaður mánaðarins – Sigurmundur Gísli Unnarsson
Ný skólalóð Sóla formlega tekin í notkun
Engin niðurstaða um frekari fjármögnun ríkisins á NSL-4
Herjólfur siglir eina ferð fyrir hádegi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.