Vestmannaeyjabær óskar eftir niðurstöðum úr PISA
Barnaskóli Vestmannaeyja. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Vestmannaeyjabær mun óska eftir niðurstöðum úr PISA 2025 fyrir sveitarfélagið. Þetta kemur fram í svari Jóns Péturssonar, sviðsstjóra fjölskyldu- og fræðslusviðs Vestmannaeyjabæjar, við fyrirspurn Eyjafrétta.

Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur ákveðið að veita þeim sveitarfélögum og grunnskólum sem eftir því leita upplýsingar um eigin niðurstöður úr rannsókninni. Jón segir bæinn nýverið hafa séð tilkynningu ráðuneytisins og að beiðni verði send samdægurs.

„Ég get ómögulega svarað hvenær þessar niðurstöður munu berast til okkar en vonandi verður það fljótt. Við förum yfir niðurstöðurnar og metum framhaldið í kjölfarið,“ segir Jón.

Samkvæmt tilkynningu ráðuneytisins verða niðurstöður afhentar að lokinni frekari greiningu á hrágögnum OECD. Ráðuneytið vísar jafnframt til upplýsinga um áreiðanleika niðurstaðna þegar þær eru greindar niður á einstök sveitarfélög og skóla.

Upplýsingagjöfin er liður í áherslu ráðuneytisins á að skapa heildstæða yfirsýn yfir stöðu íslenskra barna í námi. Þá er fyrirhugað að birta niðurstöður stöðu- og framvinduprófa Matsferils í lesskilningi og stærðfræði opinberlega eftir skólum vorið 2027, ásamt niðurstöðum í lesfimi.

Nýjustu fréttir

Vikan í Eyjum: Herjólfur, framkvæmdir við höfnina og fjárhagsáætlun bæjarins
Lúðrasveitin í landsliðsklassa – Kraftur, gleði og glæsilegur samhljómur
Gera ráð fyrir 610 milljóna afgangi á næsta ári
Hausttónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja í myndum
Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.