Vestmannaeyjahlaupið - �?átttakendur koma víða að
�?egar sólarhringur er í að ræst verði í hlaupið hafa skráð sig 130 manns en þeir koma víða að og eru frá sjö þjóðernum. Einn þeirra er Chizuru Hamasaki sem er fædd í Hiroshima í Japan en hún kom til Eyja í gær með fjölskyldu og vinum og stefnir á að hlaupa 10 km. Að sjálfsögðu nýttu þau tækifærið og fóru að leita af lundapysjum og fundu nokkrar eins og sést á myndinni.
Vantar 14 í að takmarkið náist
Einungis 14 manns vantar til að 150 keppenda markmiðið náist og hvetjum við því alla til að skrá sig í hlaupið en hægt er að gera það inni á hlaup.is og við Íþróttamiðstöðina á morgun þangað til kl. 11:00. Fyrir þá sem hafa tök á, er æskilegt á að sækja keppnisnúmer og gögn í dag frá 18-20 í Íþróttamiðstöðinni þar sem 80 manns koma með Herjólfi í fyrramálið. í fyrsta sinn verður flögutímataka en það virkar þannig að flögu, sem tekur tímann, er komið fyrir í skó keppenda og er gott að vera búinn að því kvöldið áður.

Nýjustu fréttir

Elliði Snær skoraði átta mörk í jafntefli Íslands
Fylgi flokkanna í Eyjum
Komu inn vegna veðurs
Afslættir hverfa með bættu raforkuöryggi
Jason Stefánsson meðal útskriftarnema FÍV 
Foreign Monkeys gefa út þriðju breiðskífu sína – „III“
Úttekt á fasteignagjöldum ársins
Mikil gróska í fimleikastarfi og mót framundan
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.