Í síðustu viku bauð Nýsköpunarmiðstöð Íslands Eyjamönnum upp á námskeið sem nefnist Orkubóndinn og fjallar eins og nafnið bendir til um orku og orkunotkun og ekki síst nýjar leiðir til orkuöflunar. Þetta var sjöunda námskeiðið sem Nýsköpunarmiðstöð hefur haldið vítt og breitt um landið og hefur aðsókn að þeim verið afar góð. Sú var einnig raunin í Vestmannaeyjum, hér sátu um 30 manns námskeiðið sem stóð frá kl. tíu um morguninn til kl. fimm síðdegis.