Meðfylgjandi myndir eru af Sigurði Stefánssyni formanni Jötuns frá 1944 til 1967. �?nnur myndin er af Jóni Rafnssyni formanni Jötuns í ræðustól 1. maí 1937 á gatnamótum Skólavegar og Ráðhústraðar. Á þriðju myndinni sést yfir höfnina á svipuðum tíma. Fjórða myndin er af Jónatan Aðalsteinssyni sem var formaður Jötuns frá 1968 til 1974.
Nú er ég formlega tekinn við formennsku í Sjómannasambandinu af Sævari Gunnarssyni sem hefur verið formaður undanfarin 20 ár.
Mín og nýrrar stjórnar sambandsins bíður mikið starf.
Fyrst og síðast þurfum við að ná nýjum kjarasamningi við LÍ�? sem nú kallar sig SFS.
Frumvörpin um veiðigjöldin og fiskveiðistjórnunina virðast vera í fæðingu en ekki er þó samstaða innan ríkisstjórnarinnar um þessi mál.
�?annig að enn gæti orðið bið á að viðsemjendur okkar virði okkur viðlits, en það hefur verið aðalafsökun þeirra að þessi frumvörp séu ekki komin fram, fyrir því að tala við okkur. Minni á að LÍ�? (SFS) vísaði deilunni til Ríkissáttasemjara.
Sjómenn eru margir orðnir langþreyttir á þessum drætti og hafa setið eftir hvað ýmis félagsleg- og kjarasamningsbundin réttindi varðar.
Mönnunarmálin eru ekki á góðu róli. �?tvegsmenn hafa gengið á lagið og fækkað um of á nýjum skipum að okkar mati.
Við gerum okkur grein fyrir að ný skip með betri búnaði kalli á einhverja fækkun, en fyrr má nú rota en dauðrota.
Mönnunarnefnd er aftur tekin til starfa og vonandi náum við einhverri vitrænni niðurstöðu í þessi mál með einhverskonar sátt en ekki ósætti allra aðila.
Fiskverðmálin verður að taka til gagngerrar endurskoðunar. �?að gengur ekki að sjómanninum sé hægt að stilla upp að vegg þegar kemur að samningum um fiskverð. Eitthvað annað verður að koma í staðinn. �?g er með nokkrar hugmyndir þar að lútandi sem settar verða fram síðar.
Enn og aftur óska ég sjómönnum og fjölskyldum þeirra gleðilegs nýs árs með ósk um gott samstarf á árinu.