Vilja taka upp daggjald í Frístund
Frístund er til húsa í Hamarsskóla. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Fræðsluráð Vestmannaeyja tekur jákvætt í hugmyndir um að foreldrar greiði daggjald fyrir Frístund í stað núverandi fyrirkomulags. Einnig á að endurskoða reglur starfseminnar og kanna hvort hún eigi betur heima undir fjölskyldu- og tómstundaráði.

Gjaldskrá, reglur og framtíðarskipulag Frístundar voru til umræðu á fundi fræðsluráðs 14. október. Þar var meðal annars rætt um samanburð á gjaldskrá við sambærileg sveitarfélög og mögulegar breytingar á skipulagi og umsjón Frístundar og Sumarfrístundar.

Ráðið fól sviðsstjóra fjölskyldu- og fræðslusviðs að vinna drög að nýrri gjaldskrá þar sem miðað verði við daggjald og leggja þau fyrir næsta fund. Ekki kemur fram í fundargerðinni hver fjárhæð daggjaldsins gæti orðið eða hvaða áhrif breytingin hefði á greiðslur foreldra.

Reglur og skráning endurskoðuð

Fræðsluráð telur jafnframt mikilvægt að endurskoða núgildandi reglur Frístundar með hliðsjón af starfsemi, þjónustu og skráningarfyrirkomulagi. Sviðsstjóra var falið að yfirfara reglurnar í samstarfi við deildarstjóra Frístundar og leggja fram drög á næsta fundi.

Þá telur ráðið tækifæri til að þróa og efla Frístund og Sumarfrístund. Það tekur jákvætt í að skoða hvort starfsemin eigi betur heima undir fjölskyldu- og tómstundaráði.

Áður en afstaða verður tekin til slíkrar breytingar á sviðsstjóri að leggja fram greiningu á kostum, tækifærum og mögulegum áskorunum hennar.

Breytingar á gjaldskrá, reglum og umsjón starfseminnar hafa því ekki verið samþykktar, heldur er nú unnið að tillögum og frekari greiningu.

Mánaðargjald nú rúmar 15 þúsund krónur

Samkvæmt birtri gjaldskrá Frístundavers á vef Vestmannaeyjabæjar er mánaðargjald fyrir vistun 15.304 krónur og miðdegishressing kostar 3.117 krónur til viðbótar. Samtals nemur það 18.421 krónu á mánuði.

Í gjaldskránni er einnig tilgreint 1.061 krónu gjald fyrir heilsdagsvistun og 2.030 króna gjald ef barn er sótt of seint. Systkinaafsláttur er skráður 7.277 krónur og gildir á lægsta gjaldi óháð dvalartíma. Ekki er veittur afsláttur af miðdegishressingu.

Fjárhæð fyrirhugaðs daggjalds liggur ekki fyrir og því er enn óljóst hvaða áhrif breytingin hefði á greiðslur foreldra.

Nýjustu fréttir

Vikan í Eyjum: Herjólfur, framkvæmdir við höfnina og fjárhagsáætlun bæjarins
Lúðrasveitin í landsliðsklassa – Kraftur, gleði og glæsilegur samhljómur
Gera ráð fyrir 610 milljóna afgangi á næsta ári
Hausttónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja í myndum
Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.