Eyjafréttir leituðu eftir viðbrögðum þingmanna Suðurkjördæmis vegna þeirrar stöðu sem komin er upp í samgöngumálum. Rétt er að taka fram að fyrirspurnin var send áður en tilkynning um lokun flugvallarins barst. Páll Valur Björnsson, Bjartri framtíð og 10. þingmaður Suðurkjördæmis deilir þeim áhyggjum sem bæjaryfirvöld og Eyjamenn allir hafa af því ástandi sem skapast hefur í samgöngumálum.
�??�?etta er að mínu mati algerlega óásættanlegt og ég lýsi yfir mikilli furðu með að svona geti gerst ekki síst í ljósi þeirra aðstæðna sem Eyjamenn búa í samgöngumálum yfirhöfuð. Hvað ég og aðrir þingmenn kjördæmisins getum gert í þessu máli er aftur á móti eitthvað sem ég get ekki alveg svarað ef ég á að vera alveg heiðarlegur. Samningar eru frjálsir og ekki gott að segja hvaða áhrif það hefði ef við færum að skipta okkur af þeim. En það breytir því ekki að málið er grafalvarlegt og eins og áður sagði óásættanlegt. Eg myndi vilja ekki síst í ljósi yfirlýsinga þeirra sem fara með samningsmál áhafnarinnar að ríkissáttasemjari yrði kallaður til strax og verkfalli frestað á meðan samningarviðræður færi fram. Hvort það er hægt þekki ég ekki en það er ekki hægt að líta fram hjá aðstæðum Eyjaskeggja og þeirra afleiðinga sem þetta ástand hefur á daglegt líf þeirra og þar vegur öryggisþátturinn einna þyngst. �?etta er einfaldlega ekki boðlegt. �?g ber þá von í brjósti að þessum deilum ljúki sem fyrst og mun leggja mitt lóð á vogarskálar til þess að svo megi verða og þá kannski helst með því að benda á þá miklu sérstöðu sem íbúar Vestmannaeyja búa við.�??
Hér að neðan má lesa bréf sem ritstjórn Eyjafrétta sendi á alla tíu þingmenn kjördæmisins:
Kæri þingmannahópur Sunnlendinga
Eins og þið kannski vitið, er verkfall háseta, bátsmanna og þerna hafið um borð í Herjólfi. Verkfallið hefur nú staðið í tæpa viku og íbúar Vestmanneyja þegar farnir að finna illilega fyrir verkfallsaðgerðum, sem halda samfélaginu hér í heljargreipum. Skipið siglir nú aðeins eina ferð á virkum dögum, enga á laugardögum og sunnudögum. �?fært hefur verið í Landeyjahöfn undanfarið og verður fram í næstu viku. Verkfallið bitnar einkum á íbúum Vestmannaeyja, þeim sem síst mega við því, barnafjölskyldum og þeim sem þurfa að sækja læknisþjónustu til höfuðborgarinnar. Sem dæmi má nefna íþróttahópa sem annars færu í dagsferð um helgi, þurfa nú að fá frí tvo daga í skóla, gista í þrjár nætur með tilheyrandi aukakostnaði foreldra. Dæmi eru um að þeir sem þurfi að sækja læknisþjónustu, þurfi frí úr vinnu í þrjá daga. Við þetta má bæta raunverulegt tap fyrirtækja í bænum.
Eyjafréttir leita eftir viðbrögðum þingmanna kjördæmisins við þessari stöðu sem upp er komin og hvernig þú ætlar að beita þér fyrir því að samgöngumálum verði komið aftur í viðunandi horf. �?að bendir nefnilega allt til þess að deiluaðilar séu ekkert að nálgast í viðræðum, sem reyndar hafa ekki verið í gangi síðan í síðustu viku. Deiluaðilar hafa ekki séð ástæðu til að funda, svo mikið ber á milli. Er þá ekki komin rík ástæða fyrir hið opinbera að grípa inn í?
Júlíus G. Ingason
ritstjóri Eyjafrétta