Vönduð stjórnsýsla?
Loforð um vandaða stjórnsýslu hljóma vel í eyrum kjósenda í aðdraganda kosninga.
Kjósendur vilja að lýðræðislega kosnir fulltrúar þeirra vandi til verka og fari eftir lögum og reglum við framkvæmd og ákvörðunartöku innan stjórnsýslunnar með hagsmuni samfélagsins í heild að leiðarljósi sem er auðvitað lykillinn að hinni vönduðu stjórnsýslu.
Loforð um vandaða stjórnsýslu missa hins vegar marks þegar þau eru andstæð lögum og reglum.
Hið nýja framboð H-listans hefur nú lofað, fái það til þess umboð bæjarbúa, að oddviti þeirra muni segja sig frá því umboðinu sínu sem hún sækist nú eftir sem bæjarfulltrúi og taka að sér launað starf sem bæjarstjóri. Sem lögfræðingur og áhugamanneskja um vandaða stjórnsýslu þykir mér skjóta hér skökku við enda sveitarstjórnarlögin skýr hvað þetta varðar, en þar kemur fram að:
�??Sveitarstjórnarmanni ber skylda til að taka þátt í öllum sveitarstjórnarfundum og fundum í nefndum og ráðum sem hann hefur verið kjörinn til nema lögmæt forföll hamli.�??
Í frumvarpi því sem síðar varð að lögunum segir einnig um þetta að:
�??�?essi starfsskylda er grundvöllur að tilvist og skipulagi sveitarstjórnarstigsins. �?egar einstaklingur hefur verið kjörinn til að gegna stöðu sveitarstjórnarmanns er það hans borgaralega skylda að gegna því starfi af alúð og samviskusemi. Frá þeirri skyldu getur hann ekki vikist nema á grundvelli eðlilegra og réttmætra ástæðna.�??
Telji einhver að fara megi frjálslega með það hvað teljist �??lögmæt forföll�?? í skilningi laganna er það á misskilingi byggt en um það segir í frumvarpinu:
�??Mikilvægt er af tilliti til festu í störfum sveitarfélaganna að þeir sem kjörnir eru í sveitarstjórn geti ekki vikið úr þeim af geðþóttaástæðum einum.�??
Segja má að sveitarstjórnarlögin leggi grunninn að vandaðri stjórnsýslu sveitarfélaganna og kosningaloforð sem eru andstæð lögunum geta ekki boðað vandaða stjórnsýsluhætti út kjörtímabilið. Lögin eru skýr hvað þetta varðar hvort sem litið er til bókstafs laganna sjálfra, frumvarpsins sem síðar varð að lögunum eða anda þeirra almennt. Lýðræðislega kosnir fulltrúar til setu í sveitarstjórn geta ekki vikið úr sæti sínu að ástæðulausu eða eftir atvikum til að taka að sér starf bæjarstjóra.
Umboð kjörinna fulltrúa er sótt til okkar bæjarbúa. �?að er ekki persónuleg eign fulltrúanna sem þeir geta ráðstafað að vild með pólitískum gerningum innan framboða sem koma og fara.
Vönduð stjórnsýsla er ekki bara fögur orð og göfugt loforð í kosningabaráttu. Vönduð stjórnsýsla er fyrst og fremst að fara eftir lögum og reglum og sætta sig við að eðli málsins samkvæmt ber öllum sem starfa fyrir sveitarfélagið, hvort sem þeir eru kjörnir til þess eða ekki, að fara eftir og framfylgja lögunum. �?að býður því H-listans að breyta kosningaloforði sínu eða halda sig við gefið loforð og sína það í verki að vönduð stjórnsýsla er bara eitthvað sem öðrum stjórnmálaöflum ber að fara eftir.
Arndís Bára Ingimarsdóttir, lögfræðingur.

Nýjustu fréttir

Fjölskyldusaga – Lífsförunauturinn Þóra
Kostnaður við NSL-4 sprengir áætlanir – kominn í 3 milljarða
Óstöðugir flutningar valda vandræðum í Eyjum
Séra Kristján segir upp sem vígslubiskup í Skálholti
Arnar Pétursson valdi leikmannahóp fyrir lokaleiki undankeppni EM
Ófært í Þorlákshöfn – Herjólfur bíður átekta fyrir utan höfnina – uppfært
Veðrið gengur niður
Eyjarnar landa í Þorlákshöfn

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.