Eyjapeyji býður sig fram sem formann SUS

Þórlindur Kjartansson gefur kost á sér til þess að gegna embætti formanns í Sambandi ungra sjálfstæðismanna. Sambandið velur sér forystu á sambandsþingi sem haldið verður á Seyðisfirði helgina 14. til 16. september. Núverandi formaður, Borgar Þór Einarsson, hefur tilkynnt að hann muni ekki sækjast eftir endurkjöri.

Þórlindur, sem er 31 árs, hefur verið virkur í starfi Sjálfstæðisflokksins og ungliðahreyfingarinnar um árabil. Hann er nú umsjónarmaður málefnastarfs SUS auk þess sem hann gegndi veigamiklu hlutverki í kosningabaráttu Sjálfstæðisflokksins í vor, að því er kemur fram í tilkynningu.

Hann útskrifaðist úr Menntaskólanum í Reykjavík árið 1996 þar sem hann gegndi embætti Inspectors scholae. Hann er með BA gráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands og var virkur í starfi Vöku, félags lýðræðissinnaðra stúdenta. Í Vöku var Þórlindur meðal annars varaformaður, formaður, oddviti og kosningastjóri. Hann sat í Stúdentaráði og stjórn Stúdentaráðs 1999 – 2001, var formaður stjórnar Félagsstofnunar stúdenta 2005 til 2007 og situr enn í þeirri stjórn. Hann hefur verið annar af tveimur ritstjórum vefritsins Deiglan.com frá 2003, en í þeim félagsskap eru nú um eitt hundrað manns.

Þórlindur starfar nú sem deildarstjóri í markaðsdeild Landsbankans þar sem hann hefur umsjón með erlendri markaðssetningu fyrirtækisins. Hann hefur áður fengist við eigin atvinnurekstur, starfað sem textahöfundur á auglýsingastofu, verið ráðgjafi þáverandi fjármálaráðherra og blaðamaður á Fréttablaðinu. Hann hefur skrifað hundruð pistla um þjóðmál og stjórnmál á Deigluna og er auk þess höfundur þriggja bóka sem hann skrifaði ásamt Eggerti Þór Aðalsteinssyni. Þær eru: NBA Stjörnurnar (1994), NBA 95 (1995) og Enski boltinn (1999).

Þórlindur er fæddur og uppalinn í Vestmannaeyjum, sonur hjónanna Sr. Kjartans Arnar Sigurbjörnssonar og Katrínar Þórlindsdóttur. Hann er kvæntur Ingunni H. Hauksdóttur, endurskoðanda.

Nýjustu fréttir

Þétt setinn skóli þegar haustönn hefst
Heimaklettur í allri sinni dýrð – en gönguleiðin bíður enn úrbóta
Fjögur lið frá ÍBV tóku þátt á Norðurálsmótinu
Stórleikur á Hásteinsvelli í kvöld
Þriðji sigur ÍBV í röð kom gegn Stjörnunni
Bergmál á Þingvöllum sló í gegn
Mikilvæg stig í húfi þegar Stjarnan kemur til Eyja
MAST, Fiskistofa og Verðlagsstofa skiptaverðs sameinuð
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.