Framsóknarmenn ganga í barndóm

Framsóknarflokkurinn hefur löngum ekkert þótt höfða neitt of vel til ungsfólks. Gárungar hafa meira að segja haft það á orði að það þætti álíka merkilegt að rekast á ungan Framsóknarmann á förnum vegi og það væri að sjá hvítan hrafn.Mér myndi hinsvegar náttúrulega aldrei detta í hug að segja neitt þvíumlíkt. En samkvæmt því sem ég hef orðið vitni að í fjölmiðlum að undanförnu sýnist mér að þeir séu að reyna að snúa því til betri vegar. Í það minnsta miðað við hvernig tveir helstu forsvarsmenn þingflokks þeirra, sveitungar mínir úr Suðurkjördæmi Guðni og Bjarni, hafa talað að undanförnu. Þeir virðast vera farnir að reyna að ná til mun yngri markhóps. Í gær sagði Guðni t.d., spurður út í afstöðu sína varðandi nýboðaðar mótvægisaðgerðir ríkisstjórnarinnar, að menn væru að plata. Í síðustu viku sagði Bjarni svo, um það leiti sem flestir fjölmiðlar voru að fá leið á stóra Grímseyjarferjumálinu, að ráðherra væri að skrökva. Ég hélt að fólk hætti almennt að plata og skrökva einhvertímann um 10 -12 ára aldurinn. Ég hélt að fullorðið fólk segðu annað hvort ósatt eða lygi.
Sunnlensku fóstbræðurnir, Guðni og Bjarni, virðast staðráðnir í að yngja upp í röðum Framsóknarmanna og helst vilja sína væntanlegum kjósendum græna ljósið strax í frumbernsku. Kannski að þetta sé framtíðin í pólitíkinni, að flokkarnir keppist við að tryggja sér atkvæði nýrra kjósenda nokkur kjörtímabil fram í tímann.
Það væri samt leiðinlegt. Kosningavökurnar ekkert lengur spennandi og öll kosningaúrslit búin að ráðast löngu áður í sandkössunum við leikskólana.

Nýjustu fréttir

Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.