Vestmannaeyingar fagna afmæli Bæjarbryggjunnar: 100.ára í haust

Um þessar mundir halda Vestmannaeyingar upp á hundrað ára afmæli Bæjarbryggjunnar sem var tekin í notkun árið 1907. Frá náttúrunnar hendi hefur þó verið höfn í Eyjum frá landnámstíma.
   „Eins og frægt er orðið var fyrsta kirkjan á Íslandi reist við höfnina í Vestmannaeyjum þegar kristnitakan átti sér stað árið 1000. Svo liðu aldirnar og árin og alltaf var útgerð frá Eyjum, enda er þar ein af elstu verstöðvum Norður-Atlantshafs,” segir Arnar Sigurmundsson, formaður framkvæmda- og hafnarráðs Vestmannaeyja.

   „Fyrsta bryggjan var svo reist þegar vélbátar hófu að koma til landsins og til að sinna þeim betur réðist þetta litla sveitarfélag í að byggja hana. Fljótlega fékk hún nafnið Bæjarbryggjan og í ár minnumst við Vestmannaeyingar þessara tímamóta,” segir Arnar.
   Nokkrum árum síðar, eða árið 1911, var bryggjan stækkuð og endanlega mynd fékk hún árið 1925. Nú er hins vegar verið að vinna í að endurgera þessa aldargömlu bryggju og er stefnt að því að hún fái eins upprunalegt útlit og kostur er enda höfðar slíkt bæði til heima- og ferðamanna.
   „Höfnin í Vestmannaeyjum hefur alltaf verið talin mjög góð og eftir gosið varð hún enn betri því við það þrengdist innsiglingin. Við höfum um tvo kílómetra af bryggjuplássi en það er svo mikil vegalengd að allir eyjarskeggjar gætu raðað sér upp á bryggjunni og myndað óslitna röð á bryggjukantinum,” segir Arnar svolítið stoltur og bætir því við að íbúar eyjarinnar séu rúmlega fjögur þúsund í dag.
   „Skipum hefur fækkað með árunum, en á móti hafa þau stækkað svo við höfum virkilega þörf fyrir allt þetta pláss og jafnframt góða þjónustu við skipin. Bæði skemmtiferða og farskip. Menningartengd ferðaþjónusta er líka stöðugt að sækja í sig veðrið og í okkar tilfelli er þetta einstakt því það er svo margt við menninguna í Eyjum sem tengist höfninni. Stafkirkjan er til dæmis hérna við höfnina og húsið Landlyst, sem er fyrsta fæðingarstofnunin sem reist var á landinu og svo er náttúrlega umhverfið við höfnina, sem er stórskorið og einstaklega fallegt,”
segir Arnar og tekur um leið fram að daglega sé mikið líf við þessa höfn.
   „Herjólfur siglir til og frá landi tvisvar sinnum á dag og þá eru ónefnd fiski-, flutninga- og skemmtiferðaskipin. Því er um að gera að búa svo um að hér séu allar aðstæður til fyrirmyndar svo að hafnarlífið haldi áfram að blómstra eins og það hefur gert undanfarnar aldir,” segir Vestmannaeyingurinn Arnar Sigurmundsson.

 

 

 

Nýjustu fréttir

Íris ætlar að ganga í Sjálfstæðisflokkinn
Arnór með fimm mörk í jafntefli Karlskrona
Rannveig Ís­fjörð sækist eftir 4. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins
Systurskipin landa fullfermi
Golfvöllurinn í Eyjum tilnefndur til alþjóðlegra verðlauna
Aníta sækist eftir 2. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins
Enginn úr núverandi meirihluta gefur kost á sér áfram
Síðasti séns! Taktu þátt í að móta menningarstefnu Vestmannaeyja

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.