Nótt safnanna og aðrir viðburðir 2007

Mikil og metnaðarfull dagskrá er um helgina á Nótt safnanna og ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi. Leikfélag Vestmannaeyja er með sýningu á Blá hnettinum eftir Andra Snæ, Mugison verður með tónleika í Höllinni, rithöfundar lesa upp úr bókum og á Kaffi Kró verður eyjatónlistarkvöld.

Dagskrá helgarinnar er eftirfarandi:

 

Föstudagur 9. nóv.
Skansinn – Stafkirkjan 19.30
Setningarathöfn og tónlistaratriði.
Sr. Guðmundur Örn Jónsson og Jarl Sigurgeirsson .

Í Höllinni 21.00
Mugison og hljómsveit (aðgangseyrir 2.000).

Café Drífandi -“Open Mic”, opnar kl. 24.00.
Cornero – sértilboð “Kokteilkvöld, opið til kl. 03”

Laugardagur 10. nóvember
14.00 Safnahús
Sýningar á vegum bókasafnsins: Konan í Norðri og Saga íslenskra biblíuþýðinga.
Sýning á vegum skjalasafnsins: Dagbókarbrot og bréf Agnesar Aagaard sýslumannsfrúar 1874-1891.

Rithöfundastund. Eftirtaldir lesa úr verkum sínum:
Hrund Þórsdóttir les úr bók sinni Loforðið. Bókin hlaut Barnabókaverðlaunin 2007.
Þórunn Valdimarsdóttir les úr nýjustu bók sinni. Um er að ræða sakamálasöguna Kalt er annars blóð, þar sem hún færir sjálfa Njálu í nútímabúning.
Þórður Ingi Guðjónsson ritstjóri Sverris sögu les og kynnir hina vönduðu útgáfu.

14.00 Bæjarleikhúsið.
Leikfélag Vestmannaeyja flytur barnaleikritið Blái hnötturinn eftir Andra Snæ Magnason.

16.00 Betel.
Tónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja.

20.00 Fiska- og náttúrurgripasafnið.
Erpur Snær Hansen fjallar um rannsóknir á sjófuglum.

21.00 Herjólfsbær.
Yrsa Sigurðardóttir les úr nýjustu bók sinni. Um er að ræða glæpasögu sem heitir Aska og fjallar um lík sem finnast við uppgröft húsa sem grófust undir í gosinu í Vestmannaeyjum.

22.00 Kaffi Kró
Eyjatónlistarkvöld

Café Drífandi “Open Mic”, opnar kl. 24.00
Cornero – sértilboð “Kokteilkvöld, opið til kl. 03

Sunnudagur 11. nóvember
Safnahús
14.00 Róbert Haraldsson dósent í heimspeki við HÍ fjallar um Henrik Ibsen og konuna í norðri   

Nýjustu fréttir

Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Dýptarmælingar fyrirhugaðar í Landeyjahöfn
Landsréttur hafnaði kröfu um gæsluvarðhald
Framkvæmdir í febrúar-blíðunni
„Þær halda utan um hjartað í Hljómey“ 
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.