Mikilvægt að þyrla verði staðsett úti á landi

Þýðingarmikið skref í þá veru að tryggja aukið öryggi sjófarenda á miðunum í kringum landið í framtíðinni var stigið s.l. föstudag þegar dómsmálaráðherrar Íslands og Noregs skrifuðu undir samkomulag um samstarf Íslands og Noregs um kaup og rekstur nýrra langdrægra björgunarþyrla. LÍÚ ítrekar á heimasíðu sinni samþykkt aðalfundar samtakanna um að mikilvægt sé að þyrla verði staðsett úti á landi.

Samkvæmt samkomulaginu er miðað við að Ísland kaupi þrjár nýjar björgunarþyrlur og Noregur tíu til tólf. Stefnt er að því að þær verði afhentar á árunum 2011-2014. Þetta er í samræmi við áður samþykktar tillögur dóms- og kirkjumálaráðherra um eflingu þyrlusveitar landhelgisgæslunnar sem gera ráð fyrir því að í sveitinni verði fjórar björgunarþyrlur, þ.e. þrjár stórar björgunarþyrlur auk einnar minni þyrlu. Þar með verði björgunargeta að lágmarki sú að unnt verði að sinna leit og björgun með þyrlu á landi og innan 200 sjómílna efnahagslögsögu Íslands við erfiðar veðuraðstæður og bjarga mönnum um borð í þyrlu á þeim ystu mörkum.

Landhelgisgæslan mun leigja Eurocopter Super Puma og/eða Dauphin þyrlur til leitar- og björgunarflugs, svipaðar þeim sem landhelgisgæslan hefur rekið undanfarna rúma tvo áratugi þar til nýjar þyrlur verða afhentar.

Þyrla verði staðsett úti á landi

Á aðalfundi LÍÚ í október var samþykkt ályktun þar sem því var fagnað hversu mjög þyrlubjörgunarsveit Landhelgisgæslu Íslands hefur vaxið fiskur um hrygg og hversu öflug sveitin væri orðin.

Í ályktuninni sagði einnig: “Fundurinn beinir því til ríkisstjórnarinnar að staðsetja þyrlu úti á landi sem mun þannig staðsett auka enn frekar á öryggi og margfalda þjónustugetu sveitarinnar.”

Töluverð umferð skipa er um hafsvæðið fyrir norðan- og norð-austanvert landið og mikilvægt er að viðbragstími sé sem stystur ef óhöpp verða. Því er nauðsynlegt að björgunarþyrlur séu ekki einvörðungu staðsettar á suðvestur horninu.

Sá tímasparnaður sem næst fram með því að staðsetja þyrlu t.d. á Akureyri gæti skipt sköpum ef óhöpp verða á þessu hafsvæði, en vegalengdin á milli Reykjavíkur og Akureyrar í beinni loftlínu eru 135 sjómílur og við bætast 30-40 mílur ef fljúga þarf með ströndinni. Í dag þarf TF-LIF, þyrla Landhelgisgæslunnar, að stoppa og taka eldsneyti á Akureyri ef hún flýgur frá Reykjavík og norður fyrir land þar sem flugþol hennar er takmarkað við 625 sjómílur. Ef þyrlan væri hins vegar staðsett á Akureyri hefði hún flugþol upp á um 300 sjómílur hvora leið, en að auki sparast tími sem er afar mikilvægt fyrir þann sem er í nauðum staddur og þarf aðstoð.

Nýjustu fréttir

Jafnt hjá ÍBV og Fram í Lengjubikar kvenna
Tómas Bent og félagar í Hearts aftur á sigurbraut
ÍBV vann Suðurlandsslaginn
Öflug barátta og samstaða skipar öndvegi í framtíð Eyjanna
Engin börn í vistun utan Vestmannaeyja
Grípa þarf til aukasundkennslu eftir langvarandi lokun
Suðurlandsslagur í Eyjum
Herjólfur til Landeyjahafnar seinni partinn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.