Á spjallborði www.ibv.is hefur farið fram undafarnadaga umræða um það hvort Vestmannaeyjabær eigi að greiða upp skuldir ÍBV Íþróttafélags en samkvæmt spjallinu eru skuldir félagsins um 80 milljónir króna.
Sitt sýnist hverjum í þessu en upphaf þessarar umræðu má líklega rekja til þess orðróms að ÍBV hafi boðið Vestmannaeyjabær að festa framkvæmdum á knattspyrnuhúsi um eitt ár en í staðinn fá ákveðna upphæð til reksturs ÍBV.
Á spjallsvæði ÍBV má m.a. finna eftirfarandi skrif:
Ég held að íbúar í Vestmannaeyjum geri sér ekki almennilega grein fyrir hve staðan er alvarleg. ÍBV íþróttafélag skilar bæjarfélaginu gríðarlegum beinum fjármunum á hverju ári með allri sinni starfsemi auk þess að vera í raun andlit bæjarfélagsins og það eina sem sameinar alla bæjarbúa í leik og starfi, börn og fullorðna. Því finnst mér að bærinn eigi hiklaust að greiða upp skuldir félagsins og koma síðan félaginu í þá stöðu að það geti virkilega rekið sig sem gott fyrirtæki – Einar Hlöðver
Nei er svarið mitt. Bærinn á ekki og getur ekki borgað upp skuldir ÍBV íþróttafélags. Á ekki vegna þess að það er ekki endalaust hægt að girða upp um félagið. Og getur ekki vegna þess að það er ekki hægt að ætlast til þess af bæjarbúum að skattpeningar þess fari í skuldir búnar til af framúrkeyrslumönnum hjá ÍBV. Ég er samt ekki að segja að bærinn megi ekki styrkja félagið myndarlega. – Sigurður O
Ég er á því að Vestmannaeyjabær megi alveg koma að því að greiða einhvern hluta skuldanna og létta á batteríinu með einhverjum hætti, en frábið mér frestun knattspyrnuhúss í því samhengi. Bærinn er nú ekki svo á horriminni að þess þurfi, en hann má gera kröfur um agað og skýrt stjórnskipulag ÍBV-Íþróttafélags þar sem tryggt sé að völd og ábyrgð með fjármunum fari saman eins og kostur er. Ég vona að menn finni farsæla lausn á þessu máli svo gott fólk fáist áfram til starfa fyrir félagið. Bibbi á samúð mína alla að sitja með þetta allt í fanginu núna og það verður að styðja við þetta af myndarskap svo svona sómamenn hreinlega hrökklist ekki í burtu. Þar á ég við Vestmannaeyjabæ, fyrirtæki/styrktaraðila og svo alla stuðningsmennina og sjálfboðaliðana. Nú þarf að standa þétt saman, hvort sem aðstoð fæst við skuldirnar eða ekki. – Jón Óskar
Bærinn á auðvitað að koma með miklu meira fjármagn inn í íþrótta- og æskulýðsstarf bæjarins, að mörgu leyti skömm af aðkomu bæjarins í þessum málum. Andstaða við byggingu knattspyrnuhúss er sterk innan íhaldsins og þar fara margir mikinn þegar þessi mál ber á góma. Því má kannski alveg koma á framfæri hér að mér var sagt í liðinni viku, af íhaldsmanni, að Heimir og Jón Óli væru ekkert hrifnir af þessu knattspyrnuhúsi – hverslags bull er þetta eiginlega! Heimir ásamt Palla Scheving sennilega verið einn ötulasti talsmaður þess að svona hús rísi. Finnst þessi umræða með ólíkindum gæti ritað hérna langan langan pistil um íþróttir og bæjarfélagið. Hugsið ykkur t.d. hér berja bæjarstjóri og bæjarstjórn sér á brjóst þegar við náum góðum árangri og fagna starfsemi félagana og forvarnarstarfi og hugsið ykkur þetta starf okkar er ekki merkilegra í þeirra hugum en svo að það er ekki einu sinni íþrótta – og æskulýðsfulltrúi í 100% starfi hjá bænum – grátlegt ekki satt. – Fosterinn
Tjáðu þig um málefnið á www.eyjar.net/spjall
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst