Spellvirki unnin á jeppling

Bílnum var lagt á föstudag en á sunnudag sáu lögreglumenn frá Selfossi að búið var að brjóta rúður í bifreiðinni og beygla hana að framan, greinilega með grjótkasti, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. Einnig var búið að færa bílinn til og stela tækjabúnaði og skráningarnúmerum. Lögreglan á Selfossi skorar á þá sem geta veitt upplýsignar um […]

Hættir eftir 18 ár hjá bænum

Ásbjörn réði sig upphaflega til orkusviðs Selfossveitna en tók við framkvæmda- og veitusviði Árborgar fyrir fimm árum. �?Með tíð og tíma hefur vægi verkefna sem krefjast orkutækniþekkingu minnkað og starfið þróast í aðra átt. Með því að skipta um starf vil ég einfaldlega einbeita kröftunum þangað sem sérþekking mín sem orkuverkfræðingur nýtist betur,�? segir hann. […]

Eyjamenn sigursælir á lokahófi HSÍ

Eyjamenn fengu öll verðlaunin sem veitt voru í 1. deildinni fyrir utan ein verðlaun. Besti leikmaðurinn í 1. deild var valinn Sigurður Bragason og kom það fáum á óvart enda átti Sigurður einstaklega gott tímabil, líklega hans besta á ferlinum. Hann var jafnframt valinn besti sóknarmaðurinn í deildinni og gamla brýnið, Erlingur Richardsson var valinn […]

Græddu 275 milljónir á sölu Byggðarhorns

Byggðarhornið er 150 hektarar en þar er búið að deiliskipuleggja 26 lóðir í búgarðabyggð. Feðgarnir keyptu jörðina af Gísla Geirssyni fyrir sex mánuðum á 105 milljónir, samkvæmt kaupsamningi. Í millitíðinni hafa þeir látið leggja vegi og annað á svæðinu fyrir um 70 milljónir. �?�?að kom okkur á óvart hvað þetta seldist fljótt. Við höfðum reiknað […]

�?tskriftartónleikar Egils Árna

Egill Árni er söngnemandi �?lafar Kolbrúnar Harðardóttur við Söngskólann í Reykjavík og hefur komið fram sem einsöngvari við ýmis tilefni undanfarin ár. Hann sótti námskeið Kiri te Kanawa á vegum skólans sl. vetur og söng, í framhaldi af því, á tónleikum hennar í Háskólabíói. Sl. haust vann hann samkeppni tónlistarskólanna sem veitti honum tækifæri til […]

Djass og Drottningarhattar í Rauða húsinu

Á sérstökum aldamótamatseðli í anda 19. aldar eru m.a. lummur með laxi í forrétt, langeldaður lambaskanki í aðalrétt og því fylgir að sjálfsögu skyr með bláberjum og rjóma. Sérlagaðar rjómatertur í tröllastærð, svokallaðir Drottningarhattar, verða á boðstólum til að minnast Konungskomunnar 1907. Á Eyrarbakka og Stokkseyri verður mikið um að vera þessa helgi en Rauða […]

�?rír nýir heiðursfélagar

Allir hafa þeir mikið komið við sögu félagsins, hver með sínum hætti. Hafsteinn átti stóran þátt í endurreisn félagsins árið 1962 og var formaður þess það ár. Hann og fjölskylda hans tóku virkan þátt í störfum félagsins um árabil. Hafsteinn var einnig formaður UMFÍ í átta ár. Kristján var formaður Umf. Selfoss árin 1965-1969 og […]

Vatnsréttindi í �?jórsá

�?ó ég hafi ákveðnu skoðanir á virkjunum í neðri hluta �?jórsar þá ætla ég ekki að láta þær í neinu koma hér fram í þessum skrifum. Hinsvegar velti ég því fyrir mér með tilliti til þjóðlendulaga, þar sem aldalangur hefðaréttur eignar á afréttum landsins er ekki virtur. Hverning og við hvern gat Einar Benediktsson samið […]

Hvað gerðist, hvernig gerðist það og hvað var öðruvísi en venjulega?

Fyrirlesarar voru þeir Halldór Halldórsson, forvarnafulltrúi Alcan, Reynir Guðjónsson frá VÍS, Sigurður Jónsson frá TM, Hjörtur Kristjánsson frá Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja, Haukur Jónsson frá Lífeyrissjóði Vestmannaeyja, Ingimundur Valgeirsson, frá Slysavarnaskóla Landsbjargar og Sveinn Hjörtur Hjartarson frá LÍ�?. Arnar Sigurmundsson stýrði svo umræðum og fyrirspurnum í lok fundarins. Um 63% slasaðra á sjó eru undirmennSveinn reið á […]

Eignast �?rúðvang 10

�?Íbúðin er steinsar frá bæði grunn- og leikskóla og mun styrkja starfsemi þeirra. Í hvernig mynd er ekki alveg ráðið, en möguleikarnir eru margir,�? segir �?orgils Torfi Jónsson í samtali við blaðið. (meira…)

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.