Alþjóðleg tónlistarveisla í Eyjum um helgina

Það verður sannkölluð tónlistarveisla í Vestmannaeyjum um helgina en bæði laugardag og sunnudag verða tónleikar með tónlistarmönnum sem hafa náð langt á alþjóða mælikvarða. Á laugardag, kl. 14.00 er tyrkneska stórsöngkonan Hanan EL Shemouty með tónleika í Vélasalnum. Á sunnudagskvöld eru svo stórtónleikar í Hvítasunnukirkjunni klukkan 20.00 en ekki klukkan 15.30 eins og áður var […]

Heita á stjórn og stofnfjáreigendur í Sparisjóðnum að standa saman

Á fundi bæjarstjórnar í gær var fjallað um málefni Sparisjóðs Vestmannaeyja en Elliði Vignisson, bæjarstjóri var með framsögu um málið. Þar kom fram að lagt hafi verið fyrir fulltrúa Vestmannaeyjabæjar í stjórn Sparisjóðsins að verja sjóðinn fyrir yfirtöku annarra aðila. Elliði sagði að sporin hræði og benti á atburðarrásina í Sparisjóði Hafnarfjarðar þar sem stofnfjáreigendur […]

Vaktin komin út

41. tölublað Vaktarinnar er nú á leiðinni inn á hvert heimili í Vestmannaeyjum en blaðið er einnig hægt að lesa hér á www.sudurland.is. Í blaðinu þessa vikuna ræðir Vilhelm G. Kristinsson við Grím Gíslason um fyrirtæki hans, Grím kokk. Þá er fjallað um skipalyftuna en rúmt ár er síðan lyftan eyðilagðist. Elliði Vignisson segist bæði […]

Afar mikilvæg að vilji heimamanna komi skýrt fram

Auglýsing Ríkiskaups um forval vegna Bakkafjöruútboðs hefur vakið talsverða athygli en auglýsingin birtist í Morgunblaðinu á sunnudag. Þar er auglýst eftir þátttakendum í forvali vegna lokaðs útboðs fyrir rekstur ferjusiglinga milli Vestmannaeyja og Bakka­fjöru. Elliði Vignisson, bæjarstjóri segist bæði fagna auglýsingunni og setja ýmis spurningamerki við fyrirhugað útboð. (meira…)

Súpa ala Lækur

Í dag birtum við uppskrift sem að barst á tölvupóstinn eyjar@eyjar.net frá lesenda okkar. Það var Sverrir Júlíusson sem sendi okkur þessa uppskrift af súpu en uppskriftina fékk hann frá tengdó eins og hann orðaði það. Ef að þú hefur einhverja góða uppskrift þá endilega sendu okkur hana á eyjar@eyjar.net Verði ykkur að góður. Þessi […]

Bæjarstjóra-blogg

Já ég hrósaði bæjarstjórninni okkar hér í greininni á undan og stend við hvert orð sem ég sagði. Mér finnst þetta gott fólk sem stjórnar bænum og ástandið hér er gott. Ég var að tala við Magga Sig framkvæmdastjóra Stiena og Olla byggingaverktaka og hann brosti hringinn “Aðal-vandamálið er að okkur vantar fleiri starfsmenn” sagði […]

Fjárfestar sagðir bjóða margfalt verð stofnfjár til þess að hafa áhrif á stöðu varasjóðs sparisjóðsins

Á fundi bæjarstjórn Vestmannaeyja í gærkvöldi lögðu leiðtogar minni- og meirihluta þeir Páll Scheving og Elliði Vignisson fram sameiginlega ályktun um málefni Sparisjóðs Vestmannaeyja. Er þessi tillaga sett fram í ljósi þeirrar umræðu og breytinga sem ákveðnar voru á stofnfjáreigendafundi Sparisjóðs Vestmannaeyja.Í ályktun bæjarstórnar segir m.a.  “Jafnframt beinir bæjarstjórn þeim eindregnu tilmælum til stjórnar og […]

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.