Örlagadagur

Dagurinn í dag er örlagadagur í lífi vinar míns og fyrrverandi bekkjabróður hans Ólafs Jóhanns. Í dag tilkynnti þessi yngsti starfandi prestur landsins formlega að hann væri uppgjafar-Vestmannaeyingur.   Þó hann reyni af veikum mætti að halda í það litla stolt sem hann þó hafði meðan hann gat með sanni sagst vera Eyjamaður og básúnar […]

Skora á bæjarstjórn að efna til kosninga um Bakkafjöru

Nú liggur fyrir í verslunum bæjarins undirskriftalisti þar sem skorað er á bæjarstjórn að efna til kosninga á viðhorfi fólks til væntanlegrar hafnar í Bakkafjöru. Rúmlega eitt hundrað manns höfðu þegar skrifað undir listann í Vöruval og í Krónunni en listanum var dreift seint í gærkvöldi. (meira…)

Unglingarnir til fyrirmyndar

Söngkeppni Samfés, í Suðurlands & Suðurnesjariðli var haldin með pompi og prakt um síðustu helgina í Vogum á Vatnsleysuströnd. Helgin gekk frábærlega vel og voru um 400 unglingar sem tóku þátt í fjörinu. (meira…)

Jólasmiðja og ljósmyndanámskeið framundan hjá Visku

Þó svo að það styttist í jólin þá er nóg að gera hjá Visku fræðslu- og símenntunarmiðstöð Vestmannaeyja. Nýverið gerði Viska samning við samstarfssamning við Háskólann á Bifröst. Framundan eru námskeið í innpökkun á jólagjöfum, námskeið um vín og ljósmyndun. Borð og pakkaskreytingarLaugardaginn 17. nóvember kl.13:00-15:00 verður haldið námskeið í borð- og pakkaskreytingum.  Berglind Erlingsdóttir, […]

Tónleikar Mugison í Höllinni

Created by PhotoWatermark Professional

Síðasta föstudagskvöld voru tónleikar í Höllinni með Mugison og hljómsveit hans. Voru þessir tónleikar liður í menningardagskrá helgarinnar Nótt safnanna sem þótti takast frábærlega. Greinilegt var á tónleikargestum að Mugison var að gera góða hluti á sviðinu og Höllin var þétt setin. Diddi Vídó tók þessar myndir (meira…)

Betra skip

Á dauða mínum átti ég frekar von en að ég yrði áhugamaður um hönnun á skipum og ferjum. Svo er nú hinsvegar komið að ég hef orðið nokkuð gaman af þessum skipa pælingum.  Auðvitað er ég eins langt frá því og hægt er að vera sérfræðingur á því sviði, reyndar þekki ég lítið til annars […]

1000 tonna kast hjá Guðmundi VE

Samkvæmt bloggsíðu Þorbjörns Víglundssonar sem er í áhöfn Guðmundar VE gengur vel á síldarmiðunum. Guðmundur VE fékk í gær um 1000 tonn í einu kasti og fyllti Guðmundur VE sig og gaf svo restina til Sighvatar Bjarnasonar VE, Hákon EA og Bjarna Ólafssonar AEK. Síldin veiðist nú við Grundarfjörð og er þar mikill fjöldi skipa […]

ég ætla mér að minnsta kosti ekki að stofna trúfélag í Eyjum

www.eyjar.net heldur uppteknum hætti og heyrir í brottfluttum eyjamönnum bæði innanlands sem og erlendis með þeim tilgangi að fá að vita hvar þau eru stödd í lífinu og hvaða viðhorf þau hafa til Vestmannaeyja. Að þessu sinni heyrðum við í sr. Ólafi Jóhanni Borgþórssyni, en sr. Ólafur Jóhann starfar sem prestur í Seljakirkju í Reykjavík. […]

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.