Spurning hvort Landeyjahöfn opni á föstudag

Nú virðist styttast í að Landeyjahöfn opni að nýju en höfnin hefur verið meira og minna lokuð það sem af er árs. Dýpkunarframkvæmdir um helgina hafa gengið upp og ofan en ekki hefur tekist að dæla nógu miklum sandi til að opna höfnina að svo stöddu. Siglingastofnun metur stöðuna þannig að á miðvikudaginn liggi fyrir […]

Enn ráðist á dyraverði Volcano

Aðra vikuna í röð er ráðist á dyravörð á skemmtistaðnum Volcano Café en í síðustu viku var einn dyravörður skallaður á staðnum.. Atburðurinn átti sér stað aðfaranótt 27. mars en dyraverðirnir höfðu vísað einum af gesti staðarins út. Gestinum mislíkaði það og réðist á einn dyravörð staðarins en áverkarnir voru ekki alvarlegir. Þetta kemur fram […]

Vel skóaðir Eyjamenn æfa á Spáni

Undirbúningur strákanna í meistaraflokki stendur nú sem hæst og eru þeir nú staddir í æfingarbúðum á Oliva Nova á Spáni. Þar munu strákarnir dvelja í rúma viku og æfa við bestu mögulegu aðstæður. Fararstjórar ferðarinnar eru Ágústa og Gaui. Hér kemur smá pistill frá Ágústu. (meira…)

ÍBV með fjóra leikmenn á reynslu á Spáni

ÍBV er með fjóra leikmenn sem æfa með liðinu á reynslu í æfingaferð liðsins á Spáni en þetta staðfesti Tryggvi Guðmundsson leikmaður liðsins í viðtali við Valtý Björn Valtýsson í útvarpþættinum Mín skoðun á X977 rétt í þessu. Tryggvi sagði þar að um væri að ræða fjóra leikmenn um tvítugt sem koma frá Crewe Alexandra, […]

Skýrist í dag hvort höfnin opni á miðvikudag

Á fundi um samgöngumál í Vestmannaeyjum á dögunum sagði Sigurður Áss Grétarsson, frá Siglingastofnun að dæla þyrfti í 4-5 daga til að opna Landeyjahöfn. Um hádegisbil síðasta miðvikudags fór dæluskipið Skandia upp að Landeyjahöfn og hóf að dæla en síðan þá hafa aðstæður verið hagstæðar til dælingar. Það þýðir að í hádeginu í dag eru […]

Drífa valin í úrvalsliðið

Drífa Þorvaldsdóttir var valin í úrvalslið undankeppni U-17 ára landsliða í handbolta sem fór fram í Reykjavík um helgina. Í riðli með Íslandi voru Sviss, Spánn og Króatía en Drífa þótti vera besta örvhenta skyttan í riðlinum. Íslenska liðið vann tvo af þremur leikjum sínum, gegn Sviss og Króatíu en tapaði fyrir Spánverjum. Íslenska liðið […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.