Nú virðist styttast í að Landeyjahöfn opni að nýju en höfnin hefur verið meira og minna lokuð það sem af er árs. Dýpkunarframkvæmdir um helgina hafa gengið upp og ofan en ekki hefur tekist að dæla nógu miklum sandi til að opna höfnina að svo stöddu. Siglingastofnun metur stöðuna þannig að á miðvikudaginn liggi fyrir hvort hægt verði að opna höfnina næstkomandi föstudag.