Drífa Þorvaldsdóttir var valin í úrvalslið undankeppni U-17 ára landsliða í handbolta sem fór fram í Reykjavík um helgina. Í riðli með Íslandi voru Sviss, Spánn og Króatía en Drífa þótti vera besta örvhenta skyttan í riðlinum. Íslenska liðið vann tvo af þremur leikjum sínum, gegn Sviss og Króatíu en tapaði fyrir Spánverjum. Íslenska liðið endaði í þriðja sæti og sat eftir á lakari markatölu.