Á fundi um samgöngumál í Vestmannaeyjum á dögunum sagði Sigurður Áss Grétarsson, frá Siglingastofnun að dæla þyrfti í 4-5 daga til að opna Landeyjahöfn. Um hádegisbil síðasta miðvikudags fór dæluskipið Skandia upp að Landeyjahöfn og hóf að dæla en síðan þá hafa aðstæður verið hagstæðar til dælingar. Það þýðir að í hádeginu í dag eru liðnir fimm sólarhringar síðan Skandia hóf að dæla og því ætti höfnin að opna í dag. En svo einfalt er það ekki.