Brotist inn í Axel �? og Lundann

Lögreglan hafði ýmsum verkum að sinna í vikunni sem leið, enda ýmis verkefni sem koma inn á borð lögreglu sem þarf að sinna. Skemmtanahald helgarinnar fór fram með ágætum og þurfti lögreglan lítið að hafa afskipti af gestum skemmtistaða bæjarins. Tilkynnt var um tvö innbrot í vikunni sem leið en brotist var inn í verslun […]

Perla byrjuð að dýpka

Dýpkunarskipið Perla er byrjuð að dýpka við Landeyjahöfn en ölduhæð þar er nú 1,1 metri samkvæmt öldudufli. Allt útlit er fyrir að hægt verði að dýpka við höfnina í dag, og hugsanlega á morgun en eftir það er spáð stífri austan átt, jafnvel stormi um miðja vikuna en um eða eftir helgi breytist vindáttin í […]

Hásteinsvöllur meðal flottustu knattspyrnuvalla heims

Á vefsíðunni The best eleven á finna ýmsan fróðleik um knattspyrnu. Meðal annars er þar að finna mat vefsins á ellefu flottustu knattspyrnuvöllum heims en heimavöllur ÍBV, Hásteinsvöllur er þar á meðal, einn íslenskra knattspyrnuvalla. (meira…)

Tveir efnilegir skrifa undir hjá ÍBV

Tveir af efnilegustu knattspyrnumönnum landsins, þeir Hafsteinn Gísli Valdimarsson og Sigurður Grétar Benónýsson, skrifuðu undir sína fyrstu samninga hjá ÍBV á föstudaginn var. Sigurður Grétar skrifaði undir tveggja ára samning en Hafsteinn Gísli þriggja ára. Báðir eru þeir á fyrsta ári í öðrum flokki og hafa gengið upp í gegnum alla yngri flokka félagsins. (meira…)

Rúmlega fjörtíu manna gönguhópur heimsótti Eyjar um helgina

Fjallgönguklúbburinn Toppfarar kíkti við í Eyjum um helgina. Um var að ræða 41 manna hóp sem fór á fjöll á Heimaey. Klúbburinn hefur verið starfandi síðan 15. maí 2007 en á þriðjudagskvöldum æfir hópurinn en fer síðan einu sinni til tvisvar í mánuði í lengri ferðir á hærri fjöll. Ferð hópsins til Eyja var 90. […]

V- listinn

Á síðasta bæjarstjórnarfundi voru samþykkt oddvitaskipti hjá Vestmannaeyjalistanum. Tveir reyndir bæjarfulltrúar hafa yfirgefið hópinn og aðrir komið inn í þeirra stað. Skv. sveitarstjórnarlögum kemur það núna í hlut Kristínar Jóhannsdóttur að taka sæti sem næsti aðalmaður og hinn gamalreyndi Stefán Ó Jónasson verður okkar fyrsti varamaður. Það þýðir að minnihlutinn í bæjarstjórn Vestmannaeyja er eingöngu […]

Nýr búnaður auðveldar loðnuveiðar

Búnaður í nýjasta uppsjávarskipi flotans auðveldar mönnum að ganga frá loðnunót eftir köst. Slíkt sparar dýrmætan tíma á veiðum þar sem nótin er jafndjúp og knattspyrnuvöllur er langur. (meira…)

Missti stjórn á mótorhjóli og féll af því

Karlmaður á sextugsaldri féll af mótorhjóli á Strandvegi í gær, skömmu fyrir klukkan fimm eftir að hafa misst stjórn á hjólinu. Maðurinn rann 33 metra á hjólinu áður en hann féll af því samkvæmt því sem haft er eftir lögreglunni í Vestmannaeyjum á mbl.is. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.