Lögreglan hafði ýmsum verkum að sinna í vikunni sem leið, enda ýmis verkefni sem koma inn á borð lögreglu sem þarf að sinna. Skemmtanahald helgarinnar fór fram með ágætum og þurfti lögreglan lítið að hafa afskipti af gestum skemmtistaða bæjarins. Tilkynnt var um tvö innbrot í vikunni sem leið en brotist var inn í verslun Axel Ó og veitingastaðinn Lundann.