Tveir af efnilegustu knattspyrnumönnum landsins, þeir Hafsteinn Gísli Valdimarsson og Sigurður Grétar Benónýsson, skrifuðu undir sína fyrstu samninga hjá ÍBV á föstudaginn var. Sigurður Grétar skrifaði undir tveggja ára samning en Hafsteinn Gísli þriggja ára. Báðir eru þeir á fyrsta ári í öðrum flokki og hafa gengið upp í gegnum alla yngri flokka félagsins.