Dýpkunarskipið Perla er byrjuð að dýpka við Landeyjahöfn en ölduhæð þar er nú 1,1 metri samkvæmt öldudufli. Allt útlit er fyrir að hægt verði að dýpka við höfnina í dag, og hugsanlega á morgun en eftir það er spáð stífri austan átt, jafnvel stormi um miðja vikuna en um eða eftir helgi breytist vindáttin í norðanátt.