Einar Sverrisson í ÍBV

Selfyssingurinn Einar Sverrisson mun spila með ÍBV næsta vetur en hann hefur verið lánaður frá 1. deildarliði Selfoss til Íslandsmeistara ÍBV. Einar, sem er 22 ára, leikur í stöðu leikstjórnanda og skyttu en hann var markahæsti leikmaður Selfyssinga í 1. deildinni síðasta vetur, með 104 mörk í 19 leikjum. Einar hefur auk þess leikið með […]

Róleg vika þrátt fyrir mikinn fjölda í bænum

Vikan var með rólegra móti þrátt fyrir að fjöldi manns væri í bænum enda Shellmót-ÍBV haldið með öllum þeim fjölda gesta sem fylgir þeim liðum sem sækja Eyjarnar heim. Fór mótið að vanda vel fram og engin teljandi útköll í tengslum við það. Helgin fór fram með ágætum og fá útköll á öldurhús bæjarins en […]

Jónsmessugleði í miðbænum

Í blíðunni á laugardaginn stóðu ýmsir aðilar fyrir Jónsmessuhátíð í miðbænum. Ýmis tilboð voru í gangi í verslunum, sölubásar á Bárustíg og Hilmisgötu, leikir skemmtun. Fulltrúi Eyjafrétta, Halldór Benedikt var að sjálfsögðu á staðnum. (meira…)

Ferðalöngum bent á að fylgjast með veðurspá

�??Eins og flestir landsmenn hafa orðið varir við er óvenjulega djúp lægð á leið til okkar. Mögulega/vonandi mun hún fara vestur fyrir okkur hér í Eyjum en til þess reyna að tryggja að fólk sé meðvitað um stöðu mála sendum við út þessa ábendingu,�?? segir í orðsendingu frá Herjólfi. Ábending/viðvörun til farþega Herjólfs 30.06.2014 Við […]

Litaskiptur bær á Goslokunum

OLYMPUS DIGITAL CAMERA

Um næstu helgi verður hin árlega Goslokahátíð haldin í Eyjum en í ár er 41 ár síðan gosinu lauk. Goslokanefnd fékk í aðdraganda hátíðarinnar fjölmargar áskoranir um að taka upp litaskiptingu hverfa að nýju og hefur nú ákveðið að verða við þessum áskorunum, að því að fram kemur á facebooksíðu nefndarinnar. Liti hverfanna má sjá […]

Rúmlega 7000 gestir í Eldheima

Á þeim rétt rúmlega mánuði sem liðinn er frá opnun Eldheima, hafa rúmlega 7000 gestir heimsótt safnið. Í eldheimum er eldgosinu 1973 gerð góð skil í máli og myndum en húsið við Gerðisbraut 10 en var grafið upp og er nú miðpunktur safnsins. Kristín Jóhannsdóttir, safnvörður Eldheima sagði í stuttu samtali við Eyjafréttir að aðsókn […]

Stjarnan Shellmótsmeistari

Stjarnan stóð uppi sem Shellmótsmeistari 2014 en Shellmótinu lauk síðdegis á laugardag. Stjarnan lagði Breiðablik í úrslitaleik mótsins 2:1 en alls var leikið um 13 bikara, hvorki meira né minna og má sjá úrslitin hér að neðan. Eins og gefur að skilja var mikið líf og fjör á mótinu en Sighvatur Jónsson, hjá Sigva media […]

KFS gerði jafntefli

KFS hefur verið á miklu flugi það sem af er sumars en fyrir helgi hafði liðið leikið sjö leiki í deild og bikar, unnið sex þeirra en tapað fyrir 1. deildarliði �?róttar í bikarnum á útivelli. Á laugardaginn mættu Eyjamenn Vængjum Júpíters á útivelli en leikurinn fór fram á gervigrasinu við Egilshöll. Leiknum lauk með […]

Vindasamt og hækkandi alda

Veðurstofa Íslands vill vekja athygli á óvenju öflugri lægð, miðað við árstíma, sem fer yfir landið á þriðjudag og miðvikudag Á þriðjudag verður lægðin vestur af landinu og vindáttin því suðaustlæg og má búast við að vindstyrkurinn verði á bilinu 10-18 m/s, einna hvassast um landið SV-vert og hviður við fjöll allt að 35 m/s. […]

Lithverfaskipting á goslokahátíð

Í aðdraganda goslokahátíðar fékk goslokanefnd fjölmargar áskoranir um að taka upp litaskiptingu hverfa að nýju. Goslokanefnd verður við þeirri áskorun og er skiptingin eftirfarandi:Í aðdraganda goslokahátíðar fékk goslokanefnd fjölmargar áskoranir um að taka upp litaskiptingu hverfa að nýju. Goslokanefnd verður við þeirri áskorun og er skiptingin eftirfarandi: Vesturbær til og með Illugagötu skreytir með appelsínugulu […]

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.